Raquelita Rós og Þórhildur Rún nýir forstöðumenn hjá Isavia Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2021 08:57 Raquelita Rós Aguila og Þórhildur Rún Guðjónsdóttir. Isavia Raquelita Rós Aguilar og Þórhildur Rún Guðjónsdóttir hafa verið ráðnar sem nýir forstöðumenn hjá Isavia.
Í tilkynningu frá Isavia segir að Raquelita Rós hafi verið ráðin forstöðumaður stafrænnar þróunar og Þórhildur Rún forstöðumaður viðskipta og markaðsmála. „Raquelita er með BSc-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðustu þrjú ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Stokks hugbúnaðarhúss en þar á undan sinnti hún fjölbreyttum stjórnunarstöðum hjá því félagi. Raquelita hefur þróað og stýrt hönnunarsprettum með stærstu fyrirtækjum landsins og hefur aðstoðað fyrirtækin við skilgreiningu á hugbúnaði eða stafrænni vegferð. Hún er reyndur stjórnandi og hefur mikla tækniþekkingu sem mun nýtast vel í uppbyggingu upplýsingatækni hjá Isavia. Þórhildur Rún Guðjónsdóttir hefur hafið störf sem forstöðumaður viðskipta og markaðsmála hjá Isavia. Þórhildur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Síðustu ár starfaði hún sem framkvæmdastjóri m.a. hjá Nortek frá 2017 og Atlantik lögmannsstofu en áður sem vörustjóri og sérfræðingur á markaðsdeild Símans. Þórhildur stýrir nýrri viðskipta- og markaðseiningu sem ber ábyrgð á óflugtengdum tekjum Keflavíkurflugvallar, t.a.m. af verslunum, veitingum og samgöngum. Rekstrarreynsla Þórhildar mun m.a. nýtast við öflun viðskiptatekna og viðskiptaþróunar til að styrkja samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar, bæta upplifun og ánægju farþega og viðskiptafélaga,“ segir í tilkynningunni.
Fréttir af flugi Vistaskipti Stafræn þróun Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Viðskipti innlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Kristján ráðinn til Advania Viðskipti innlent Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Uppsagnir hjá Controlant Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Sjá meira