Litlu skrímslaverkefnin sem við frestum Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. apríl 2021 07:00 Við eigum það öll til að fresta stundum litlum og fljótlegum verkefnum, sem þó enda með því að taka af okkur orku því við hugsum um þau endalaust og erum með samviskubit yfir því að vera ekki búin að klára þau. En við getum þjálfað okkur í að hætta þessum vana. Vísir/Getty Við eigum það öll til að fresta ýmsum litlum verkefnum. Jafnvel svo litlum, auðveldum og fljótlegum að það hvers vegna við ljúkum þeim ekki af, er oft hreinlega óskiljanlegt. Jafnvel okkur sjálfum.
Þetta geta verið mjög auðveld verkefni samt. Að svara einhverjum tölvupósti eða hringja örstutt símtal í yfirmanninn okkar. Tekur eina til fimm mínútur. Samt frestum við. Aftur og aftur. Ekki vegna þess að við erum svo ofboðslega upptekin í öðru. Nei þvert á móti. Litlu verkefnin sem hér um ræðir, taka nefnilega ofurpláss í huganum okkar. Við erum því mjög meðvituð um að þetta sé eitthvað sem við ÞURFUM að gera. En erum að humma þau af okkur. Hvers vegna? Jú, oft eru þetta einhver verkefni sem við þurfum að klára en þeim fylgja einhver ónot. Gæti verið óþægileg tilfinning eða neikvæð. Finnum það aðeins í maganum en vitum jafnvel ekki alveg hvað veldur. Við getum því sagt sem svo að þetta séu litlu skrímslaverkefnin okkar. Þau eru enga stund gerð og kláruð, en í stað þess að framkvæma, hugsum við um þau daginn út og daginn inn, erum með móral í nokkra daga og klárum ekki. En hvað ættum við að gera þá? Það fyrsta sem er gott fyrir okkur að gera er að gefa okkur nokkrar mínútur í að velta þessum verkefnum fyrir okkur. Eru það til dæmis einhver verkefni umfram önnur, sem við erum gjarnari á að fresta? Hvaða tilfinning fylgir þessum verkefnum? Og hvers vegna? Það tekur af okkur ótrúlega mikla orku að fresta litlum verkefnum og fá yfir því samviskubit. Þessi líðan getur valdið okkur kvíða og jafnvel truflað svefninn okkar. Sem aftur þýðir að við erum að festa okkur í vítahring því rannsóknir hafa sýnt að fólk sem glímir við kvíða, þunglyndi eða of lítinn svefn, er gjarnari á að fresta verkefnum en aðrir. Það er því til mikils að vinna að ná tökum á þessu og hér eru góð ráð sem geta auðveldað okkur að gera það. Ráð #1: Þú hefur tvær mínútur! Næst þegar þú stendur þig að því að ætla að bægja frá þér einhverju óþægilegu verkefni (og festast þannig í fyrrgreindum vítahring), byrjar þú á því að segja strax við sjálfan þig í huganum: „Nei! Ég ætla að klára þetta STRAX!“ Og fyrirfram er það ákveðið að þú hefur tvær mínútur til að klára. Þannig að hana nú, brettu upp ermar og kláraðu! Það sem gerist með tveggja mínútna reglunni er að hugurinn fer sjálfkrafa í viðbragðs- og framkvæmdarstöðu. Fókusinn færist á hugsanir eins og „Ókei….ef ég ætla að klára þetta STRAX, hvernig geri ég það?“ Til að gera okkur óhrædd við að prófa þetta ráð og þróa það með okkur, er bent á að rannsóknir afa sýnt að þau verkefni sem við oft hræðumst, frestum aftur og aftur og förum loks að hafa samviskubit yfir að klára ekki, reynast mun auðveldari í framkvæmd þegar að við ráðumst í þau. Sem er skiljanlegt, því þessi frestunarárátta byggir á tilfinningum og hefur því oftar en ekkert með það að gera, hvort viðfangsefnið var yfir höfuð eitthvað flókið eða neikvætt að öðru leyti en í okkar eigin huga. Með tveggja mínútna reglunni ýtum við þessum neikvæðu tilfinningum frá, en rökhugsunin tekur við: „Hvernig á ég að klára á 2 mínútum?“ Og áður en þú veist af, er verkefninu lokið. Þetta er reyndar ráð sem við getum nýtt okkur við fleira en aðeins vegna vinnunnar. Og búið okkur til öðruvísi tímaramma eftir því hvað við teljum best eiga við. Ímyndum okkur til dæmis að við séum svo alls ekki að nenna að þrífa klósettin. En í hvert sinn sem við förum á klósettið erum við rækilega minnt á að það er sko löngu kominn tími á þrif. Við nýtum okkur aðferðina og tökum ákvörðun: „Ókei, ég hef fimm mínútur til að klára að þrífa klósettið og vaskinn. Byrja!“ Og áður en þú veist af, er klósettið orðið glansandi hreint og þér líður miklu betur. #Ráð 2: Að gera leiðinleg verkefni „skemmtileg“ Annað einfalt ráð getur hjálpað okkur að klára leiðinlegu verkefnin. Það felst í því að smita hugann okkar af smá gleði. Þetta gerum við með því að byrja á því að endurstilla hugann, áður en við ráðumst í leiðinlega verkefnið. Og við spyrjum okkur sjálf: „Hvernig get ég klárað þetta, hratt og vel en þó þannig að það sé skemmtilegt?“ Því það sem gerist þegar að við bætum gleði inn í hugsunina okkar (sbr. lýsingarorðið skemmtilegt), breytist eitthvað. Og áður en við vitum af, erum við ekki aðeins búin að klára, heldur einnig búin að átta okkur á því að þetta reyndist nú ekkert svo leiðinlegt eftir allt saman. Sem aftur mun hjálpa okkur næst þegar við klárum sambærilegt verkefni, því þá er hugurinn búinn að stilla sig inn á jákvæðari hugarfar.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00 Frestunaráráttan: Að komast út úr vítahringnum Stundum er frestunarárátta meðfædd en oft er hægt að vinna sig út úr þeim vítahring að fresta sumum hlutum ítrekað segir Arnar Sveinn Geirsson verkefnastjóri hjá Auðnast. Við fáum samviskubit og líður illa ef við festumst í vítahring frestunaráráttu. 13. febrúar 2020 12:00 Þjálfa starfsfólk í að þekkja streitueinkennin og gera reglulegar mælingar „Allir starfsmenn og stjórnendur fá reglulega fræðslu um helstu einkenni streitu, viðbrögð og úrræði, sem er mjög mikilvæg forvörn,“ segir Ágústa Björg Bjarnadóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Sjóvá um hvernig fyrirtækið vinnur markvisst gegn kulnun starfsfólks. Sjóvá er í góðu samstarfi við Streituskólann og Hugarheim, sem Ágústa segir hafa gefist mjög vel. Samstarfið byggir þá á forvörnum á sviði streitu og kulnunar þar sem starfsfólk og stjórnendur fá ráðgjöf, regluleg fræðsluerindi og handleiðslu. 18. mars 2021 07:02 Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega „Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. 23. febrúar 2021 07:00 Foreldrakulnun og vinnustaðurinn Fyrir útivinnandi foreldra er vinnunni ekki lokið klukkan fjögur eða fimm á daginn. Þá á oft eftir að sækja börnin á leikskóla eða úr frístundum, skutla þeim á íþróttaæfingar, koma við í búð. Fara síðan heim og reyna að elda þokkalega hollan mat. Ganga frá, skella kannski í eina þvottavél. Vera með hálfgert samviskubit ef öllum verkefnum er ekki sinnt. Þar með talið að stunda hreyfingu sjálf eða kíkja í tölvupóstinn og klára ókláruð verkefni fyrir vinnuna. 9. febrúar 2021 07:01 Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“ Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna. 31. mars 2021 07:00
Frestunaráráttan: Að komast út úr vítahringnum Stundum er frestunarárátta meðfædd en oft er hægt að vinna sig út úr þeim vítahring að fresta sumum hlutum ítrekað segir Arnar Sveinn Geirsson verkefnastjóri hjá Auðnast. Við fáum samviskubit og líður illa ef við festumst í vítahring frestunaráráttu. 13. febrúar 2020 12:00
Þjálfa starfsfólk í að þekkja streitueinkennin og gera reglulegar mælingar „Allir starfsmenn og stjórnendur fá reglulega fræðslu um helstu einkenni streitu, viðbrögð og úrræði, sem er mjög mikilvæg forvörn,“ segir Ágústa Björg Bjarnadóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Sjóvá um hvernig fyrirtækið vinnur markvisst gegn kulnun starfsfólks. Sjóvá er í góðu samstarfi við Streituskólann og Hugarheim, sem Ágústa segir hafa gefist mjög vel. Samstarfið byggir þá á forvörnum á sviði streitu og kulnunar þar sem starfsfólk og stjórnendur fá ráðgjöf, regluleg fræðsluerindi og handleiðslu. 18. mars 2021 07:02
Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega „Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. 23. febrúar 2021 07:00
Foreldrakulnun og vinnustaðurinn Fyrir útivinnandi foreldra er vinnunni ekki lokið klukkan fjögur eða fimm á daginn. Þá á oft eftir að sækja börnin á leikskóla eða úr frístundum, skutla þeim á íþróttaæfingar, koma við í búð. Fara síðan heim og reyna að elda þokkalega hollan mat. Ganga frá, skella kannski í eina þvottavél. Vera með hálfgert samviskubit ef öllum verkefnum er ekki sinnt. Þar með talið að stunda hreyfingu sjálf eða kíkja í tölvupóstinn og klára ókláruð verkefni fyrir vinnuna. 9. febrúar 2021 07:01