Innlent

Segir plokk­daginn efla um­hverfis­vitund lands­manna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa
Umhverfisráðherra, forseti Íslands og krakkar úr Laugardal hófu plokkdaginn mikla í morgun.
Umhverfisráðherra, forseti Íslands og krakkar úr Laugardal hófu plokkdaginn mikla í morgun. Mummi Lú

Stóri plokkdagurinn er í dag þar sem fólk um allt land kemur saman og stuðlar að hreinna umhverfi. Dagurinn er sérstaklega vinsæll hjá fjölskyldum.

Einar Bárðarson, einn af upphafsmönnum Plokks á Íslandi, líkir plokkkdeginum við einn af vorboðunum.

„Stóri plokkdagurinn er núna haldinn í fjórða árið í röð, við byrjuðum á þessu 2018 og var grasrótarhópur sem hefur áhuga á umhverfinu og kannski hreinleika í umhverfinu. Hann verður bara stærri og stærri með hverju árinu og þrátt fyrir veiru og vandamál henni tengd þá er þetta svona einstaklings- og fjölskylduíþrótt ef það mætti kalla það,“ segir Einar í samtali við fréttastofu.

Dagurinn byrjaði í Laugardalnum þar sem stjórnmálamenn og börn hófu daginn á plokki. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, plokkar rusl í Laugardalnum.Mummi Lú

„Dagurinn byrjaði mjög vel hérna niðri í Laugardal með stúlkum ungum sem stofnuðu náttúruklúbb í Laugardalnum fyrir tveimur vikum hafa verið duglegar að plokka. Okkur þótti tilvalið að leiða saman þessa glaðlyndu og duglegu æsku við forseta landsins, umhverfisráðherra og þá sem standa í stafni umhverfismála í borginni,“ segir Einar.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt ungum stúlkum úr náttúruklúbbi Laugardals.Mummi Lú

Árangurinn af plokkinu er mikill.

„Við erum í samstarfi við mjög mörg sveitarfélög um allt land sem hafa haldið utan um þessar tölur fyrir okkur. Þegar við nálgumst sveitarfélögin þá er ofboðslega mikill áhugi og þetta er talið í tonnum bara í efri byggðum Reykjavíkur.“

„Það sama má segja um Reykjanesbæ og fleiri svæði. Þetta er talið í tonnum í hverju sveitarfélagi,“ segir Einar.

„Með hverjum plokkdeginum, ár frá ári, þá finnst mér umhverfisvitund landsmanna eflast. Það er ekki minni þáttur en sjálft plokkið hjá einstaklingunum,“ segir Einar.

Plokkið hófst með látum í morgun.Mummi Lú

Krakkar í náttúruklúbbnum í Laugardal settu plokkdaginn í morgun.Mummi Lú

Ungir og aldnir geta plokkað.Mummi Lú



Fleiri fréttir

Sjá meira


×