Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna við vekjaraklukku app úr síma eiginmannsins upp úr klukkan sjö á morgnanna, en í því hljómar blíðleg rödd sem býður góðan dag, tilkynnir um hitastig úti og fer stuttlega yfir veðurspá dagsins. Mjög notalegt og getur skorið úr um fataval dagsins. Hvort þörf sé á hlýrri peysu eða hvort það viðri fyrir fallegan kjól.
Annars finnst mér gott að sofa og met svefn mikils, hann nærir bæði líkama og sál. Einhvern tímann las ég líka að hann hægði á öldrun og það er óneitanlega góður kaupauki.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Vek köttinn sem sefur upp í hjá okkur hjónum og helst ofan á öðru hvoru okkar. Ég vakna ekki almennilega fyrr en eftir sturtu svo hún á sitt mikilvæga pláss í upphafi dagsins, svo er það sá yngsti sem þarf að undirbúa fyrir skóladaginn, nestið og skutl í skólann.
Þá taka við fyrstu símtöl dagsins en nýti gjarnan aksturstíma til og frá vinnu í símtöl og þegar að á skrifstofuna er komið þá er það tölvupósturinn.
Þegar að ég er í fjarvinnu þá finnst mér gott að setjast við eldhúseyjuna og lesa póstana yfir góðum kaffibolla, færi mig svo yfir á heimaskrifstofuna sem hefur reynst gríðarlega mikilvæg á þessum COVID tímum.“
Hvaða hljómsveit, lag eða söngvari kemur fyrst upp í hugann þegar þú hugsar til unglingsáranna?
„Sálin hans Jóns míns átti hug minn allan frá því snemma á unglingsárunum en svo bjó ég vel af því að eiga tónelskan eldri bróður, hann Davíð sem var duglegur að kynna mig fyrir tónlist úr ólíkum áttum, eftirminnilegast af því og þau sem eru ennþá í miklu uppáhaldi eru til dæmis Dire Strats, U2, R.E.M., Pixies, David Bowie og meistari Megas.
Ég hlustaði mikið á tónlist sem unglingur og státaði af góðu safni sem kom að góðum notum þegar að haldin voru diskótek í Grunnskólanum á Þingeyri og mér fannst alls ekki leiðinlegt að fá að stjórna tónlistinni.
Það á reyndar ennþá við í dag, þó diskótekunum hafi fækkað.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Það eru gífurlega mörg járn í eldinum sem við í Öryggismiðstöðinni erum að vinna að þessa stundina og við höfum nýtt síðast liðna mánuði afar vel í fjölbreyttum verkefnum sem öll eru til þess að ætluð að efla okkur ennþá frekar.
Við höfum verið að vinna mikið að innviðauppbyggingu fyrirtækisins ásamt því að þróa og þroskar nýjar leiðir til vaxtar. Við erum sífellt stækkandi fyrirtæki og það byggist ekki síst á því frábæra fólki sem í fyrirtækinu starfar.
Einnig er ég að vinna að lokaritgerð í MBA námi sem ég lýk í vor frá Háskóla Íslands og með því verkefni lýkur tveggja ára námi, með blendnum tilfinningum því þetta hefur verið alveg einstaklega frábær tími, með einstöku fólki og verið afar lærdómsríkur.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Á margvíslegan hátt, ég gæti mögulega átt Íslandsmet í skipulagningu og ef það væri keppnisgrein væri ég að minnsta kosti mjög efnilegur keppandi.
Ég stillti tölvupóstforritið mitt þannig að það opnast á dagatalinu. Þá sé ég strax í upphafi viku og hvers dags hvað er framundan.
Tek frá tíma fyrir mikilvæg verkefni og bóka hann í dagatalið með áminningum.
Með því móti reyni ég að vinna gegn því að tölvupósturinn og síminn stýri verkefnunum og ég sinni ekki bara því sem er áríðandi, heldur því sem er mikilvægt.
Ég vil hafa fundi stutta, bóka gjarnan örfundi, tíu til fimmtán mínútur og fæ mótþróaþrjóskukast reyni einhver að bóka mig á klukkustundar langa fundi. Það er nefnilega staðreynd að flest fundarefni má afgreiða og koma í farveg á töluvert styttri tíma.
Ég geri verkefnalista og fannst eins og almættið hefði bænheyrt mig þegar að Microsoft Planner leit dagsins ljós, nýlega prófaði ég líka Trello fyrir tilstuðlan bekkjarsystur en öll svona skipulagningartæki finnst mér undursamleg.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ekkert of seint, mér finnst gott að vakna úthvíld. Ég sofna út frá bókalestri, fer ekkert næturlangt án þess að hafa Kyndilinn minn, rafbókina meðferðis. Hann á vísan stað undir koddanum mínum hvort sem það er heima eða að heiman. Lestur er besta svefnmeðal og með tilkomu rafbókarinnar þarf ekki einu sinni að slökkva ljós að lestri loknum, hún sofnar sjálf stuttu á eftir mér.“