Viðskipti innlent

Verð­bólga ekki verið hærri í átta ár

Eiður Þór Árnason skrifar
Meginvextir Seðlabankans eru nú í sögulegu lágmarki í 0,75 prósentum.
Meginvextir Seðlabankans eru nú í sögulegu lágmarki í 0,75 prósentum. Vísir/vilhelm

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%.

Ársverðbólga mælist því 4,6% í apríl og hækkar um 0,3 prósentustig frá því í mars. Hefur hún ekki verið hærri frá því í febrúar 2013 eða í rúm átta ár. Þá mældist ársverðbólga 4,8%.

Reiknuð húsaleiga hækkaði um 2,5% sem hafði 0,4% áhrif á vísitöluna. Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 1,1% og höfðu 0,16% áhrif á vísitöluna.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum á vef Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2021 hækkar um 0,71% í apríl frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar um 0,38% frá mars 2021.

Varaði við vaxtahækkunum lækki verðbólgan ekki

Seðlabanki Íslands varaði við því fyrr í apríl að mögulega þyrfti að grípa til vaxtahækkana ef verðbólgan færi ekki að lækka. Meginvextir bankans eru nú í sögulegu lágmarki í 0,75 prósentum.

„Verðbólgan sem verið hefur núna stafar að miklu leyti af veikingu gengisins á síðasta ári. Núna höfum við séð gengisstyrkingu og ég bara býst við því að hærra gengi leiði til þess að verðlag í verslunum lækki og við náum verðbólgunni niður aftur. Ef það gerist ekki verðum við að grípa til aðgerða,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í samtali við fréttastofu þann 14. apríl síðastliðinn.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Seðlabankinn varar við vaxtahækkunum lækki verðbólgan ekki

Seðlabankinn varar við að lágir vextir vari ekki að eilífu og því gæti greiðslubyrði óverðtrygðra lána með breytilegum vöxtum breyst töluvert. Ef verðbólga haldist lengi yfir markmiði bankans sé eitt af úrræðum hans að grípa til vaxtahækkana.

Stýrivextir haldast óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×