Aron Kristjánsson: Við vorum í bílstjórasætinu allan leikinn en Fram var aldrei langt undan Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar 10. maí 2021 21:25 Haukar - Fram Olís deild karla vetur 2021 handbolti HSÍ Haukar styrktu stöðu sína í að landa deildarmeistaratitlinum er þeir mættu fram í 19. umferð Olís-deildar karla í dag. Hörkuleikur sem endaði með 6 marka sigri Hauka, 29-35. „
Ég er ánægður með þessi tvö stig og við erum einu skrefi nær deildarmeistaratitlinum. Við vorum í bílstjóra sætinu allan leikinn en Framarar aldrei langt undan og eiga hrós skilið fyrir góða baráttu,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir sigur á Fram í dag. Jafnræði var með liðunum bróðurpart leiksins þar til Haukar komu sér í ágætis forystu á loka mínútum leiksins. „Mér fannst Framararnir gefa allt í þennan leik, þeir seldu sig dýrt, börðust eins og ljón allan leikinn, þetta var hörkuleikur, þangað til að nokkrar mínútur voru eftir þar sem við náum að nýta okkur mistökin þeirra og ná ágætis forskoti.“ Þrátt fyrir að hafa sigrað í dag var Aron ekki sáttur með varnarleik sinna manna. „Menn mættu svolítið værukærir, varnarlega, til leiks. Það vantaði þessa vinnslu sem hefur verið svo góð hjá okkur, betri fræslur, staðið betur á móti þeim leikmönnum sem eru að sækja á okkur. Í dag vorum við flatir, það var of langt á milli manna.“ Næsti leikur Hauka er nágrannaslagur á móti FH. „Það er nýr leikur, nýr andstæðingur og allt öðruvísi andstæðingur. Það verður hörkuleikur þar sem að bæði lið vilja taka stigin. Við munum gera allt til þess að gera það,“ sagði Aron að lokum.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Sjá meira