Sport

Sara finnur alltaf sínar leiðir og lyftir nú sitjandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir má ekki enn reyna á fótinn enda stutt frá aðgerð. Hún lyftir þá bara sitjandi eins og sést hér.
Sara Sigmundsdóttir má ekki enn reyna á fótinn enda stutt frá aðgerð. Hún lyftir þá bara sitjandi eins og sést hér. Instagram/@sarasigmunds

Sara Sigmundsdóttir lá kannski á skurðarborðinu fyrir rúmum mánuði en íslenska CrossFit konan leitar uppi alla leiðir til að undirbúa endurkomu sína sem best.

Sara sleit krossbandið í mars eða nokkrum dögum áður en tímabilið átti að byrja. Þetta þýddi að 2021 tímabilið var fokið út í verður og vind. Áfallið var mikið en Sara setti fljótlega stefnuna á að koma til baka sterkari en fyrr.

Eftir meiðslin sýndi hún frá æfingum sínum og hún æfði alveg fram að aðgerðinni í fyrri hluta apríl.

Síðan þá hefur Sara áfram tekið skref í rétta átt og er dugleg að æfa þótt að hún megi ekki gera ákveðna hluti ennþá.

Sara segir líka endurkomusögu sína í reglulegum myndböndum sínum á Youtube. Fylgjendur hennar fá líka að sjá hana hamast á samfélagsmiðlum.

Í nýjustu færslunum má sjá Söru í lyftingasalnum og auðvitað má hún ekki enn lyfta þungu standandi.

Sara dó ekki ráðalaust heldur lyftir hún nú sitjandi. Það má sjá nokkrar útgáfur af því í færslu hennar. Það má einnig sjá hana gera æfingar með sjálfa stöngina.

„Gerðu það sem þú getur með það sem þú hefur,“ skrifaði Sara við myndböndin sín eða „Do what you CAN with what you got“ á ensku sem er hennar tungumál á samfélagsmiðlum enda með 1,8 milljónir fylgjenda og stærsti hluti aðdáandahópsins hennar því erlendis.

Það má sjá færslu Söru hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×