Innlent

Tvær bifreiðar lentu framan á hvor annarri á Vesturlandsvegi

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Vesturlandsvegi. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Frá Vesturlandsvegi. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Alvarlegt umferðarslys varð þegar tvær bifreiðar höfnuðu framan á hvor annarri á Vesturlandsvegi skammt norðan við Köldukvísl skömmu eftir klukkan 19:00 í kvöld.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að umferð um Vesturlandsveg sé nú stýrt upp á hringtorg sem liggur yfir Vesturlandsveg. Biður lögregla vegfarendur um að sýna biðlund og varkárni á meðan viðbragðsaðilar athafna sig á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×