Tónlist

„Danssumarið 2021 verður eitthvað blast“

Tinni Sveinsson skrifar
Plötusnúðurinn Honey Dijon hefur síðustu ár orðið einn vinsælasti plötusnúður veraldar.
Plötusnúðurinn Honey Dijon hefur síðustu ár orðið einn vinsælasti plötusnúður veraldar.

Umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hóa mánaðarlega í fjölda plötusnúða og taka saman lista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist þann mánuðinn.

Í morgun birtist listinn fyrir maímánuð í þætti PartyZone hér á Vísi og sem fyrr er af mörgu að taka.

„Í þessum þætti kynnum við og spilum sumarlegan og þéttan PartyZone lista fyrir maí. Við grömsum í plötukössum plötusnúðanna og grúskum í helstu veitum og miðlum. Allskonar eðalstöff og löðrandi sumar. Að þessu sinni börðust einn stærsti plötusnúður heims í dag, Honey Dijon, og nýtt remix á lagi GusGus um toppsætið. Einnig má finna frábær lög frá Chemical Brothers, Khruangbin, Booka Shade, Roisin Murphy og fleirum,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn umsjónarmanna PartyZone.

Klippa: Party Zone listinn fyrir maí

Grímulausir stefna á dansgólfið

„Danssumarið 2021 verður eitthvað blast. Fólk er að losna úr margra mánaða dansspennitreyju og ólgar í að komast á grímulaust dansgólfið. Það þarf eiginlega að fara að plana eitthvað,“ segir Helgi.

PartyZone er frumfluttur á Vísi snemma á föstudögum og er síðan aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Mixcloud síðu þáttarins. Hér fyrir neðan má sjá topp 30 listann fyrir maí í heild sinni.

Tvær múmíur frá 1991

Múmíur þáttarins (klassískar dansperlur úr fortíðinni) eru tvær. Þær eiga það sameiginlegt að hafa setið í toppsætum PartyZone listans í þessari viku fyrir 30 árum síðan, það er  laugardagskvöldið 25. maí 1991.

Topplagið var funheitt og glænýtt lag eingöngu til á 2-3 vínylplötum hjá plötusnúðum þáttarins. Það lag átti síðar eftir að verða einn stærsti dansslagari tíundaáratugarins og var vinsælasta lag sumarsins. Þátturinn bjó einn að þessu lagi í margar vikur og er lagið því einn af stóru PZ smellunum, Gypsy Woman með Crystal Waters.

Mikið af rave-lögum voru á listanum í maí 1991 enda rave-tímabilið að nálgast algert hámark og þátturinn á fullu að auglýsa mislöglegar rave-samkomur út um allan bæ. Eitt lag úr þeirri áttinni sat í þriðja sæti listans og varð síðan nokkuð stór danssmellur, Cubik 22 með Night in Motion.


Tengdar fréttir

PartyZone birtir árslistann fyrir 2020

Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.