Innlent

Trukkur valt á Hafnarfjarðarvegi

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Bíllinn liggur á hlið rétt áður en komið er að Hamraborginni.
Bíllinn liggur á hlið rétt áður en komið er að Hamraborginni. aðsend

Stór bíll valt á hlið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogsbraut fyrir skemmstu. Tveir voru í bílnum og er hvorugur alvarlega slasaður.

Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðinu við Vísi. Hann segist ekki vita hvað varð til þess að bíllinn valt á hliðina en enginn árekstur varð við annan bíl.

Af mynd sem Vísir fékk senda í kvöld af bílnum á hliðinni má sjá dæld í vegriði við hlið bílsins og ekki ólíklegt að hann hafi rekist utan í það og sá árekstur síðan valdið veltunni.

Varðstjóranum þykir ólíklegt að þeir tveir sem voru í bílnum verði fluttir á sjúkrahús en báðir stóðu þeir upp eftir slysið og eru ekki mjög meiddir, í mesta falli með minniháttar meiðsl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×