Bíó og sjónvarp

Atli og Sólrún Ylfa unnu Sprettfiskinn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigurvegari Shortfish eða Sprettfisks Atli Arnarsson annar leikstjóri Eldhúss eftir máli. Á myndina vantar Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur sem er stödd erlendis
Sigurvegari Shortfish eða Sprettfisks Atli Arnarsson annar leikstjóri Eldhúss eftir máli. Á myndina vantar Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur sem er stödd erlendis

Í gær var lokakvöld Stockfish kvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís og sigurvegari í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskurinn kynntur. Myndin Kitchen By Measure/Eldhús eftir máli var valinn sigurvegari keppninnar.

„Dómnefndina skipuðu Marina Richter blaðamaður og kvikmyndarýnir, Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri og Grímur Hákonarson handritshöfundur og leikstjóri. Öll voru þau sammála um að valið hafi verið óvenju erfitt og engin ein mynd borið höfuð og herðar yfir aðrar. Þó komust þau að niðurstöðu að lokum og úr varð að kvikmyndin Spaghetti/Spagettí eftir Egil Gauta Sigurjónsson og Nikulás Tuma Hlynsson fengu sérstaka viðurkennningu en sigur úr bítum bar stuttmyndin Kitchen By Measure/Eldhús eftir máli eftir Atla Arnarsson og Sólrún Ylfu Ingimarsdóttur,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar. 

Fulltrúar sigurmyndanna.

Atli og Sólrún hljóta fagran verðlauna grip eftir systkinin Marsibil og Róbert Kristjánsbörn sem og 1.000.000 króna úttekt frá Kukl í tækjaleigu sem mun koma sér að góðum notum við gerð næstu myndar. Hér fyrir neðan má svo sjá umsagnir dómnefndar um báðar myndirnar.

Umsögn dómnefndar um Eldhús eftir máli 

Að fanga anda þess klassíska hefur aldrei verið einfalt verk: að vera trúr söguþræði en þó gefa myndinni einstakan blæ sem gerir áhorfið einstætt og eftirminnilegt. Verkið er tæknilega óaðfinnanlegt með áherslu á minnstu smáatriðin ásamt fallegri kvikmyndatöku og innrömmun. All þetta, sem og góður dass af vitsmunalegum húmor í undiröldu hennar, gerir það að verkum að áhorf myndarnir verður afar heillandi. Af þessum ástæðum veitir dómnefnd Eldhús eftir máli eftir Atla Arnarsson og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur verðlaun Sprettfisksins 2021.

Marzibil Sæmundardóttir framkvæmdastjóri hélt ræðu og Tinna Hrafnsdóttir tilkynnti úrslit dómnefndar.

Sérstök viðurkenning: Spagettí 

Óhefðbundin spennumynd úr undirheimum Kópavogs, full af lífsgleði og sköpunarkrafti. Höfundar brjóta flest lögmál kvikmyndagerðar á afar snyrtilegan hátt svo úr verður ógleymanleg upplifun. Af þessum ástæðum veitir dómnefnd Spagettí eftir Nikulás Tuma Hlynsson og Egil Gauta Sigurjónsson sérstaka viðurkenningu. 

Annar leikstjóra Spaghetti Egill Gauti en Nikulás komst ekki á verðlauna afhendinguna

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.