Innlent

Níu mánaða fangelsi fyrir að brjóta á þremur börnum í Austur­bæjar­­skóla

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Yngsta barnið var níu ára gamalt.
Yngsta barnið var níu ára gamalt. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á þremur börnum í Austurbæjarskóla haustið 2019. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða einu barnanna, sem var níu ára þegar brotið átti sér stað, hálfa milljón króna í miskabætur.

Atvikin áttu sér stað í Austurbæjarskóla í byrjun september 2019. Maðurinn hafði laumað sér inn í skólann á meðan á kennslu stóð og lokkað níu ára gamla stúlku með sér upp á rishæð skólans. Hann hafi þar snert hana með óviðeigandi hætti á rassi, lærum og kynfærum utanklæða.

Stúlkan leitaði til starfsmanns skólans strax eftir atvikið og greindi starfsmanninum frá því hvað hafi skeð. Stúlkunni var þá strax vísað til skólastjórnenda sem kölluðu til lögreglu.

Fram kemur í dómi að eftir að stúlkan lét skólastjórnendur vita fór aðstoðarskólastjórinn að leita að manninum. Hún fann hann fljótt, en hann var nokkuð áberandi klæddur í hvítan joggingalla. Vísaði hún honum á skrifstofu skólans og sagði maðurinn henni það að hann væri að bíða eftir frænda sínum sem væri nemandi við skólann. Maðurinn yfirgaf skólann stuttu síðar, þegar af honum var litið.

Daginn eftir bárust lögreglu upplýsingar frá skólastjóra Austurbæjarskóla um að annar nemandi við skólann, fjórtán ára drengur, hafi greint frá því að hann hafi hitt mann í skólanum daginn áður sem hefði slegið hann á rassinn utanklæða og aðspurður hefði maðurinn sagst vera að grínast. Maðurinn hafi þá boðið honum fíkniefni.

Við rannsókn málsins kom í ljós að þriðji nemandinn við skólann, fimmtán ára stúlka, hafi einnig orðið á vegi mannsins. Hann hafi snert hana á óviðeigandi hátt, elt hana á skólalóðinni þar til hún fór til hóps af drengjum á lóðinni.

Maðurinn var jafnframt ákærður fyrir tvö umferðarlagabrot, en í bæði skiptin keyrði hann sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×