Síðastliðinn vetur hefur Atvinnulífið fjallað um fjölmörg íslensk nýsköpunarfyrirtæki sem stofnuð voru áratuginn eftir bankahrun. Athygli Atvinnulífsins var vakin á því, að mörg þessara fyrirtækja eru í samstarfi við króatískt hönnunar- og ráðgjafafyrirtæki, Resonate, sem stofnað var árið 2019. En hvers vegna?
Kynntust íslenskum frumkvöðlum
Árið 2019 stofnuðu Davor Culjak, Elvis Mehmedovic, Vlatka Sipos og Svjetlana Vukic fyrirtækið Resonate. Öll höfðu þau áralanga reynslu úr heimi tækni og stafrænnar markaðssetningar, allt frá hönnun til markaðssetningar og sölu.
Þetta sama ár, hitti hópurinn fyrir nokkra íslenska frumkvöðla.
Þar má nefna fyrirtækin Mussila, AwareGo og fjárfestirinn Þórður Magnússon hjá Eyri Invest, aðilar sem síðar urðu viðskiptavinir.
„Eftir það fór boltinn bara að rúlla. Samstarf þessara aðila við okkur spurðist út og áður en við vissum af höfðum við líka kynnst nýsköpunarfyrirtækjunum CoreData, Vista Data Vision, Tracio og eTactica,“ segir Elvis sem dæmi um fleiri íslensk nýsköpunarfyrirtæki sem Resonate fór að starfa fyrir.
Allir glíma við sömu áskoranirnar
Teymið segir ótrúlegan kraft og hugmyndaauðgi til staðar í íslenskri nýsköpun. Hér á landi séu margir hæfileikaríkir frumkvöðlar með flottar hugmyndir og flottar vörur.
Að innleiða vörur og þjónustu í stafrænu formi er þó ekkert auðvelt verkefni. Hvorki fyrir nýsköpunarfyrirtæki né rótgróin eldri fyrirtæki.
Í dag er ekki nóg að opna bara vefsíðu og app og halda að það sé nóg til að fá viðskiptavini til að koma og versla eða eiga við þig viðskipti.
Það sem okkur hefur í raun þótt áhugavert að sjá er að Evrópsk fyrirtæki, þar með talin íslensk fyrirtæki, virðast flest standa frammi fyrir sömu áskorunum hvað stafrænan heim varðar,“
segir Davor.
Þær áskoranir segir Davor vera eftirfarandi tvær:
- Hvernig er réttast að staðsetja vöruna og hvernig þarf markaðssetning, sala og hönnun að vera til þess að sú staðsetning gangi upp?
- Hvernig þarf hönnun á notendavænu viðmóti að vera þannig að viðskiptavinir séu líklegir til að sækjast aftur og meira í þá vöru eða þjónustu sem verið er að selja?
Þá segir Svjetlana stafrænan heim flóknari en svo að aðeins sé verið að tala um vefsíðu eða sölusíðu. Stafrænn heimur er mjög fjölbreyttur og nær allt frá því að vera á sviði netöryggis eins og starfsemi AwareGo, gagnaúrvinnslu eins og CoreData, kennsluappi fyrir börn eins og Mussila, gagnavöktun eins og VistaDataVision, eða vöktun fæðubótaöryggis eins og Tracio.
Allt eru þetta ung íslensk nýsköpunarfyrirtæki sem starfa í stafrænum heimi viðskipta og þjónustu, en á mjög ólíkum sviðum.

Engin landamæri í stafrænum heimi
Resonate teymið segir það í raun ekki skipta máli í dag, hvar fyrirtæki eru staðsett í heiminum.
Til dæmis eru verkefni Resonate í dag um fimmtíu talsins en þau eru fyrir viðskiptavini fyrirtækisins í Bandaríkjunum, Mið-Austurlöndum og Evrópu.
Allir geti unnið saman og verslað við hvorn annan.
Það eigi líka við um Króata og Íslendinga þótt fjögur þúsund kílómetrar skilji þjóðirnar að.
„Við vinnum samt sem áður sem viðbót við það teymi sem er til staðar innanhús hjá viðskiptavinum okkar. Við vinnum með þeim og komum með okkar sérfræðiþekkingu að verkefnunum. Valdeflum þeirra sérfræðinga með því að miðla af okkar reynslu og þekkingu,“ segir Elvis og bætir við: „En við erum ófeimin við að segja viðskiptavinum okkar ef það þarf að bæta úr einhverju til þess að ná raunverulegum stafrænum árangri með viðskipti á vörum og þjónustu. En erum auðvitað til staðar til að finna lausnir á því hvernig það er hægt þegar þess þarf. Við erum í skotgröfunum með viðskiptavinunum okkar.“
Sem dæmi um alþjóðleg fyrirtæki sem teymi Resonate hafa unnið fyrir í gegnum tíðina má nefna bílaumboðið Emil Frey í Sviss, Omnico Group í Bretlandi, Marriot International, Rosetta Stone, Crestron og fleiri í Bandaríkjunum.
„Við höfum unnið fyrir mörg alþjóðleg fyrirtæki, bæði í nýsköpun eins og fyrirtæki í Kísildalnum í Bandaríkjunum en eins rótgrónum fyrirtækjum sem hafa kannski verið í innleiðingu á stafrænni þjónustu í nokkur ár og við þá hluti af þeirri vegferð,“ segir Davor.
Svjetlana segir einnig mikil verðmæti í því fólgin að vinna fyrir marga alþjóðlega viðskiptavini, sem starfa á ólíkum sviðum og í ólíkum menningarheimum.
Ekki aðeins hafi þessi fjölbreytni gert Resonate kleift að vaxa og dafna því það sem alþjóðlegt samstarf kenni fólki líka, er að sjá hvað einkennir til dæmis velgengni og árangur.
Við höfum til dæmis tekið eftir því, sérstaklega í Bandaríkjunum og í Bretlandi, að það sem einkennir þau fyrirtæki sem eru að ná rosalega góðum árangri er öflug liðsheild.
Þetta eru þá fyrirtæki með frábært fólk innanborðs og mjög sterka og góða vinnustaðamenningu,“
segir Svjetlana.
Eldgosið heillar
Þá segja þau íslensku tengslin skipta Resonate miklu máli og þeim sé umhugað um að varðveita vel það góða orðspor sem fyrirtækið hefur náð að skapa sér á Íslandi. Þar hafi það verið ótrúlega verðmætt hvernig íslensku viðskiptavinirnir hafa miðlað upplýsingum um þau sín á milli og veitt þeim meðmæli. Jákvæðar umsagnir og traust í samstarfi sé ekki sjálfgefið.
Fyrir tíma Covid var sú að fulltrúar frá Resonate heimsóttu Ísland tvisvar til þrisvar á ári til að vinna um tíma á skrifstofum viðskiptavina.
Ferðalög hafi hins vegar legið niðri síðastliðið ár og samskipti farið fram með aðstoð tækninnar. Í tölvupóstum, á Zoom, Google Meet, Slack og víðar.
Þann 18. júní kemur hópurinn þó aftur fyrir vikudvöl á Íslandi.
Það verður ekkert smá gaman að hitta íslensku vinina okkar aftur. Og sjá eldgosið!“
segir Vlatka.