Lífið

Frumsýnir myndband með stærstu Youtube stjörnu á Íslandi í Bíó Paradís

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tom Hannay frumsýnir myndband með Sorelle Amore í Bíó Paradís um helgina.
Tom Hannay frumsýnir myndband með Sorelle Amore í Bíó Paradís um helgina.

Enski tónlistarmaðurinn Tom Hannay sendir um helgina frá sér Dog Days, fyrsta lagið af samnefndri plötu sem kemur út í sumar. 

Myndbandið við Dog Days verður frumsýnt í Bíó paradís við Hverfisgötu þann 6. júní klukkan 16:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 

Þetta er önnur breiðskífa Toms sem kemur frá Bolton á Englandi en hefur starfað á Íslandi síðustu ár. Tom leikstýrir og leikur sjálfur aðalhlutverkið í myndbandinu. Mótleikkona Toms er ástralska Youtube stjarnan Sorelle Amore, sem hefur um milljón fylgjendur á síðunni og hefur búið og starfað á Íslandi síðustu fimm árin.

Tom Hannay hefur starfað á Íslandi í nokkur ár.

Listrænn stjórnandi er bandaríska Instagram-stjarnan Donal Boyd. Íslenska myndlistarkonan Sigrún Hanna er hönnuður framleiðslu og leikmyndarhönnuður er bandaríski hönnuðurinn Kate Scott Stewart, en hún hefur áður starfað með stórum nöfnum á borð við NBC, Under Armour og Le Cruset. Förðun var í höndum Tatyönu Guðbjörnsdóttur. Yfirframleiðandi er hollenski umboðsmaðurinn Kim Wagenaar sem á og rekur Peer Agency í Reykjavík.

„Lagið er þokkafull gamaldags ballaða sem mætti líkja við snekkju-rokk með nútímalegum áherslum. Þar má einnig greina sterk áhrif tónlistar áttunda og níunda áratugarins. Meðframleiðendur plötunnar eru færeysku tónlistarmennirnir Janus Rasmussen (Bloodgroup, Kiasmos, Norrænu tónlistarverðlaunin 2020) og Sakaris, sem unnið hafa til verðlauna fyrir farsælt samstarf með fjölda íslenskra tónlistarmanna,“ segir í tilkynningu frá umboðsmanni Tom Hannay. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.