Íslensku stelpurnar unnu 3-2 sigur á Írum á föstudaginn var en þær komust þá í 3-0 í fyrri hálfleiknum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig íslenska liðið fylgir því eftir að hafa tapað seinni hálfleik þess leiks 2-0.
Leikurinn hefst klukkan 17.00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 og á Vísi.
Hin átján ára gamla Hafrún Rakel Halldórsdóttir og hin sautján ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir fá báðar tækifæri í dag en þær byrjuðu báðar annan vináttuleikinn á móti Ítölum í apríl og eru greinilega inn í myndinni hjá Þorsteini.
Byrjunarliðið gegn Írlandi í dag!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 15, 2021
Leikurinn hefst kl. 17:00 og er miðasala í fullum gangi á https://t.co/iwyH4UEb7x!https://t.co/krlZtBkPJ1
Our starting lineup for today's friendly against @FAIreland!#dottir pic.twitter.com/JsbMkNEHyi
Sveindís Jane Jónsdóttir byrjar líka leikinn en hún kom ekkert við sögu í fyrri leiknum. Þá koma reynsluboltarnir Hallbera Guðný Gísladóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir báðar inn í liðið.
Sveindís Jane er nýorðin tvítug en þegar farinn að láta að sér kveða í sænsku úrvalsdeildinni.
Sandra Sigurðardóttir, Elísa Viðarsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Elín Metta Jensen og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir fara allar á bekkinn en þær voru í byrjunarliðinu í fyrri leiknum.
Byrjunarlið Íslands í dag
- Cecilía Rán Rúnarsdóttir
- Hafrún Rakel Halldórsdóttir
- Glódís Perla Viggósdóttir
- Ingibjörg Sigurðardóttir
- Hallbera Guðný Gísladóttir
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
- Alexandra Jóhannsdóttir
- Dagný Brynjarsdóttir
- Sveindís Jane Jónsdóttir
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir