Markalaust í Íslendingaslagnum Valur Páll Eiríksson skrifar 20. júní 2021 13:00 Växjö og Djurgården gerðu markalaust jafntefli á Visma Arena, heimavelli Växjö, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæði lið berjast við falldrauginn.
Liðin tvö vermdu fallsvæðið fyrir leik dagsins. Djurgården var í betri stöðu, með sex stig í ellefta sætinu, eftir sigur á Eskiltuna í síðasta leik. Växjö átti hins vegar enn eftir að vinna leik í deildinni og var með tvö stig á botninum. Eftir það sem undan er gengið virtust bæði lið hins vegar hræddari við að tapa heldur en ákveðin í að vinna. Hvorugt þeirra náði að setja mark sitt á leikinn og markalaust jafntefli því niðurstaðan. Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn í vörn Djurgården og Andrea Mist Pálsdóttir spilaði sömuleiðis allar 90 mínúturnar fyrir Växjö, en hún fékk að líta gult spjald undir lok leiks. Växjö er þá með þrjú stig á botninum en Djurgården fer upp í sjö stig, líkt og Piteå, lið Hlínar Eiríksdóttur, og Eskiltuna. Þau eiga þó leiki inni þar sem sá milli Växjö og Djurgården var sá fyrsti í níundu umferðinni.
Sænski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Sjá meira