Í tilkynningu segir að sem muni Margrét móta stafrænt ráðhús og þjónustuver fyrir Sveitarfélagið Suðurland og ná þannig fram hagræðingu í rekstri, auknu öryggi í vinnslu gagna og meiri sérhæfingu í störfum.
„Sveitarfélögin fimm sem saman starfa að Sveitarfélaginu Suðurlandi, sem þrátt fyrir nafnið eru ekki eitt sveitarfélag en í sameiningarviðræðum, eru Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Saman mynda þau rúmlega 5200 manna samfélag og ná yfir 16% af flatarmáli Íslands og því til mikils að vinna fyrir íbúa og stjórnsýslu að auðvelda samskipti og sjálfsafgreiðslu á svæðinu.
Covid opnaði augu fólks fyrir nýjum lausum
Margrét hefur starfað við upplýsingatækni í um 20 ár eða frá því hún hóf framhaldsnám í upplýsinga samskiptum frá Háskólanum í Hróarskeldu. Á þessum tíma hefur hún unnið að greiningu, hönnun og uppsetningu vefsvæða, að upplýsingaöryggi og verkefnastjórnun upplýsingatækniverkefna. Margrét er einnig með IPMA vottun á C stigi í verkefnastjórnun og hefur auk þess lokið námi í markþjálfun,“ segir í tilkynningunni.