Hún ræddi réttindabaráttuna fyrir jafnri stöðu fatlaðra og ófatlaðra barna, í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild.
Sonur Gerðar er orðinn 27 ára í dag en er með þroskahömlun og einhverfu. Þegar sonur Gerðar var nemandi í Öskjuhlíðarskóla var hún í foreldrafélaginu og fann þá strax að það var margt sem brann á foreldrum nemenda við skólann.
„Þar datt ég í þetta, að vera allt í einu komin í bullandi hagsmunabaráttu. Flest foreldrafélög voru að halda bingó og safna fyrir einhverju og sjá um páskabingó eða eitthvað slíkt, en við lentum í alls kyns réttindabaráttu og baráttu fyrir þjónustu fyrir börnin okkar.“
Í kjölfarið kynntist Gerður starfi Þroskahjálpar. Hún var þar í stjórn og var meðal annars formaður í átta ár og hefur verið tengd samtökunum og hagsmunabaráttunni síðan. Hún segir að það sé margt sem þurfi enn að bæta varðandi mannréttindi þroskahamlaðra og fatlaðra.
„Það sem við þurfum að gera miklu betur er að horfa á einstaklingsbundnar þarfir fólks og mæta þeim.“
Viðtalið í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.
Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi Sjónvarp en einnig er hægt að hlusta á flestum hlaðvarpsstöðvum.
Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar framkvæmdastjóra Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu.
Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.