Sagðist hafa ekið á staurinn því hann var í símanum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. júlí 2021 06:16 Vísir/Vilhelm Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og tengdust mörg útkallanna einstaklingum í annarlegu ástandi. Alls voru 93 mál skráð frá kl. 17 til 5 í nótt.
Við upphaf vaktarinnar var tilkynnt um að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur í miðbænum og að bifreiðinni hefði síðan verið ekið á brott. Lögreglumenn náðu í skottið á ökumanninum skömmu síðar og reyndist hann í annarlegu ástandi. Gaf hann þá skýringu að hann hefði ekið á ljósastaurinn þar sem hann var upptekinn í símanum. Viðkomandi var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Um kl. 1 í nótt urðu lögreglumenn vitni að því þegar ökumaður ók á umferðarskilti. Þegar þeir hugðust ræða við hann reyndi hann að komast undan og ók við það á kyrrstæða bifreið. Lögregla veitti ökumanninum eftirför um póstnúmer 104, 103 og 200 og var handtekinn í kjölfarið. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í umdæminu Hafnarfjörður, Garðabær og Álftanes var tilkynnt um slagsmál við verslun og þjófnað úr matvöruverslun. Þá var einstaklingur í annarlegu ástandi handtekinn fyrir hótanir í umdæminu sem nær yfir Kópavog og Breiðholt og vistaður í fangaklefa. Annars staðar hafði lögregla afskipti af fullorðnum manni sem var að spreyja málningu á strætóbiðstöð. Var honum tilkynnt að hann yrði kærður fyrir eignaspjöll.
Lögreglumál Mest lesið Eins og að vera fangi í eigin líkama Fréttir „Faðir minn ætti að deyja í fangelsi“ Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Innlent Útgöngubann í borginni í nótt Erlent Þórdís vill ekki fresta landsfundi Innlent Fleiri fréttir Þórdís vill ekki fresta landsfundi Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Sjá meira