Lífið

Björgólfur naut leiksins með Beckham og félögum

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hér má sjá vinina Björgólf Thor, Guy Richie, David Beckham og David Grutman njóta sín á leik Englands og Danmerkur fyrr í kvöld.
Hér má sjá vinina Björgólf Thor, Guy Richie, David Beckham og David Grutman njóta sín á leik Englands og Danmerkur fyrr í kvöld. Skjáskot

Auðkýfingurinn Björgólfur Thor Björgólfsson lét sig ekki vanta á stórleik Englands og Danmerkur sem fór fram á Wembley fyrr í kvöld. 

Félagsskapurinn var ekki af verri endanum. En Björgólfur naut leiksins með stórvini sínum David Beckham og leikstjóranum Guy Richie sem einnig hefur sést mikið með þeim félögum.

Þá var skemmtistaðaeigandinn David Grutman einnig með í för, en hann er talinn vera einn sá virtasti í rafdanstónlistaheiminum í dag. Grutman birti mynd af þeim félögum á Instagram-síðu sinni fyrr í kvöld. Meðal þeirra sem gerðu athugasemd við myndina var heimsþekkti plötusnúðurinn David Guetta.

Það er ekki hægt að segja að lítið hafi farið fyrir vináttu Björgólfs og Beckham síðustu ár. Þeir hafa ítrekað sést saman og meðal annars verið duglegir að veiða hér á landi og ferðast saman.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.