Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans var meðal gesta Þórdísar Valdsóttur og Benedikts Valssonar í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Það gerði hann grein fyrir nýjum rannsóknum á bóluefnum fyrir yngri aldurshópa.
„Það eru komnar nokkuð góðar niðurstöður varðandi notkun á bóluefni fyrir tólf til sextán ára börn og þær sýna mjög góðan árangur og nánast hundrað prósent vernd. Það hefur hins vegar komið í ljós að sérstaklega í unglingum eða aðeins eldri aldursbili hópsins að þá hafa verið vísbendingar um að það gæti verið mjög sjaldgæf aukaverkun varðandi bólgu í hjartavöðva sem er talið mjög sjaldgæft þannig það er eitt af því sem menn hafa varann á með sér en annars eru bóluefnin talin örugg.“
Hann segir að bóluefni Pfizer fyrir þennan aldurshóp hafi verið samþykkt af Evrópsku, Bandarísku og Kanadísku lyfjastofnuninni. Þá segir hann að fyrir þremur vikum hafi komið fram niðurstöður úr fasa eitt og tvö á kínverskri rannsókn.
„Það var á börnum frá tveggja til sextán ára. Þetta er mjög lítill hópur en þær niðurstöður benda til þess að bóluefnið sé virkt.“
Hafa séð langvarandi einkenni meðal barna
Þá sé fólk á báðum áttum hvort bólusetja eigi börn. Hann segir að fólk sem sé mótfallið því tefli fram þeim rökum að börn smiti síður og fá síður alvarlega sjúkdóma.
„Rökin með eru þau að það er ákveðinn hundraðshluti sem er að fá langvarandi einkenni og heilsubrest og það hefur sést hér á landi meðal barna.“
„Svo hafa menn bent á að þetta delta afbrigði smiti frekar börn heldur en hin afbrigðin.“
Býst við háum smittölum næstu daga
Inntur eftir því hvort aðgerðir á landamærum séu nægar segir hann að þær séu gott fyrsta skref.
„Ég hefði persónulega viljað sjá frekari takmarkanir á opnunartíma skemmtistaða. Ég held að fólk missi svolítið af sér beislið þegar líða fer á nóttina og hætti að huga að almennum vörnum.“
Hann segist búast við háum smittölum næstu daga,
„Ég hugsa það. Ég hugsa að það muni örugglega aukast nokkuð fram yfir verslunarmannahelgi. Þar til mesti skemmtanabransinn fari að síga niður. Verslunarmannahelgin er framundan og maður hefur pínu áhyggjur af því.“