Straka átti hörkuhring sem hann fór á 63 höggum, átta höggum undir pari vallar. Hann 28 ára gamall og er í 161. sæti heimslistans.
Fast á hæla Austurríkismannsins sækir hinn taílenski Jazz Janewattananond sem lék einu höggi verr á hringum, á sjö undir pari. Höggi á eftir Jazz eru svo Belginn Thomas Pieters og Carlos Ortíz frá Mexíkó.
Collin Morikawa, sem vann Opna breska meistaramótið á dögunum og er í 3. sæti heimslistans, er í 20. sæti á 69 höggum, rétt eins og Norður-Írinn Rory McIlroy og heimamaðurinn Hideki Matsuyama.
Annar hringur mótsins hefst síðar í kvöld. Keppni í golfi kvenna hefst þá ekki fyrr en næsta miðvikudag, 4. ágúst.