Fótbolti

Jón Daði ekki í hóp í fyrsta leik Millwall

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jón Daði í leik gegn QPR í fyrra.
Jón Daði í leik gegn QPR í fyrra.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Millwall sem gerði 1-1 jafntefli við Queens Park Rangers í Lundúnaslag á Loftus Road í fyrstu umferð Championship-deildarinnar á Englandi í dag.

Ekki liggur fyrir hvers vegna Jón Daði var utan hóps en vel má vera að hann sé meiddur. Millwall var einnig án lykilmanna á við miðvörðinn Jake Cooper og miðjumanninn Ben Thompson.

Jed Wallace kom Millwall 1-0 yfir á 11. mínútu í leik dagsins en Rob Dickie jafnaði fyrir QPR tuttugu mínútum síðar. Ekki var skorað frekar og 1-1 jafntefli því úrslit leiksins.

Að neðan má sjá öll úrslit dagsins í deildinni.

  • Úrslit dagsins í Championship-deildinni
  • Blackburn Rovers 2-1 Swansea City

  • Bristol City 1-1 Blackpool

  • Cardiff City 1-1 Barnsley

  • Derby County 1-1 Huddersfield Town

  • Luton Town 3-0 Peterborough United

  • Preston North End 1-4 Hull City

  • Queens Park Rangers 1-1 Millwall

  • Stoke City 3-2 Reading




Fleiri fréttir

Sjá meira


×