Fótbolti

Markalaust í Íslendingaslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson, framherji Gautaborgar í Svíþjóð.
Kolbeinn Sigþórsson, framherji Gautaborgar í Svíþjóð. fotbollskanalen.se

Tveir íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni í sænska boltanum í dag þegar Gautaborg fékk Hammarby í heimsókn.

Kolbeinn Sigþórsson hóf leik í fremstu víglínu Gautaborgar og lék fyrstu 80 mínútur leiksins.

Hann atti kappi við Jón Guðna Fjóluson sem lék allan leikinn í hjarta varnarinnar en ekkert mark var skorað í leiknum.

Hammarby í 5.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Gautaborg í því níunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×