Fótbolti

Allt jafnt fyrir seinni leik Alfons Sampsted og félaga í Bodø/Glimt

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alfons Sampsted og félagar höfðu betur gegn Val í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Alfons Sampsted og félagar höfðu betur gegn Val í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Vísir/Bára

Alfons Sampsted og félagar hans í norska liðinu Bodø/Glimt heimsóttu litháíska liðið Zalgiris í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í dag. Það stefndi allt í sigur Bodø/Glimt, þar til að Zalgaris jafnaði metin í uppbótartíma. Lokatölur 2-2.

Tomislav Kis kom heimamönnum yfir eftir aðeins sjö mínútna leik og sá þannig til þess að staðan var 1-0 þegar frlautað var til hálfleiks.

Noðrmennirnir byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti, og á 49. mínútu var Ulrik Saltnes búinn að jafna metin fyrir Norðmennina.

Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Saltnes annað mark sitt, og annað mark Bodø/Glimt. Staðan var því orðin 2-1 þegar rúmlega hálftími var til leiksloka.

Það stefndi allt í að Alfosn og félagar færu með eins marks forystu í seinni leik liðanna sem fram fer eftir viku, en Eldhaji Pape Diaw jafnaði metin fyrir Zalgaris þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Lokatölur 2-2, og það er því allt undir í seinni leik liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×