Finau hefur spilað 142 mót síðan hann bar sigur úr býtum í Púertó Ríkó. Hann hefur tíu sinnum lent í 2. sæti á þeim tíma og oft verið nálægt sigrinum en aldrei komist þangað. Það var því talið að pressan myndi mögulega ná til hans enn á ný eftir því sem leið á Northern Trust-mótið. Sérstaklega fyrst fresta þurfti lokadeginum vegna veðurs.
Spánverjinn Jon Rahm var reyndar líklegastur á lokahringnum og virtist ætla að sigla sigrinum heim en hann lenti í glompu á 15. holu og missti þar niður forystu sína. Finau og Cameron Smith náðu henni og voru jafnir á 20 höggum undir pari þegar lokahringnum var lokið. Því þurfti að grípa til bráðabana,
Þar spilaði Finau nær óaðfinnanlega og tryggði sér langþráðan sigur. Hann viðurkenndi í kjölfarið að hann hefði dreymt um þennan sigur lengur en hann vildi viðurkenna.
"I only own one NBA jersey ... to give you an idea of how much Kobe meant to me." @TonyFinauGolf broke a 5-year winless drought @TheNTGolf on what would've been Kobe Bryant's 43rd birthday. pic.twitter.com/JZ2V1fulUO
— PGA TOUR (@PGATOUR) August 24, 2021
„Mér líður eins og þetta hafi verið á leiðinni í heila eilífð en að sama skapi þarf maður að vinna sér inn fyrir öllu úti á vellinum. Maður fær ekkert gefins og ég vann fyrir þessum sigri, vonandi verður meira af því sama í framtíðinni. Ég er að spila vel. Það er tvö stórmót framundan svo ég ætla að njóta sigursins. Mér líður eins og ég geti haldið þessu áfram,“ sagði sigurreifur Finau að loknum bráðabananum.
Gracious in defeat.
— PGA TOUR (@PGATOUR) August 24, 2021
Cameron Smith and @JonRahmPGA both congratulated @TonyFinauGolf after his win @TheNTGolf. pic.twitter.com/RWZyQMH5um
Jon Rahm endaði í 3. sæti á 18 höggum undir pari á meðan Justin Thomas og Tom Hoge voru jafnir í 4. sæti á 15 höggum undir pari.