Kristinn framlengir til ársins 2023 Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. ágúst 2021 19:30 Kristinn Steindórsson verður í grænu til 2023 hið minnsta. Vísir/Hulda Margrét Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til ársins 2023. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag. Kristinn er uppalinn hjá Blikum og byrjaði ungur að spila með meistaraflokki liðsins. Hann var hluti af liðinu sem varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari ári síðar. Eitthvað sem félagið er að reyna endurtaka nú ellefu árum síðar. Sem stendur er Breiðablik einu stigi á eftir Val og Víking sem tróna á toppi Pepsi Max deildarinnar. Blikar eiga hins vegar leik til góða. Eftir að hafa leikið sem atvinnumaður í bæði Svíþjóð og Bandaríkjunum samdi Kristinn við FH árið 2018. Samningur hans rann út eftir sumarið 2019 og í kjölfarið samdi hann loks við uppeldisfélagið á nýjan leik. Hann fór í gegnum endurnýjun lífdaga á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði alls átta mörk í 14 leikjum í deild og bikar. Hann hefur skorað fimm mörk í 17 leikjum í Pepsi Max deildinni það sem af er sumri ásamt því að skora í 2-1 sigrinum á Austria Vín í Sambandsdeild Evrópu. Alls hefur Kristinn leikið 181 leik fyrir Breiðablik og skorað í þeim 58 mörk. Kristinn Steindórsson er ekki eini leikmaðurinn sem hefur framlengt samning sinn á Kópavogsvelli en miðvörðurinn Viktor Örn Margeirsson gerði slíkt hið sama á dögunum.
Kristinn er uppalinn hjá Blikum og byrjaði ungur að spila með meistaraflokki liðsins. Hann var hluti af liðinu sem varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari ári síðar. Eitthvað sem félagið er að reyna endurtaka nú ellefu árum síðar. Sem stendur er Breiðablik einu stigi á eftir Val og Víking sem tróna á toppi Pepsi Max deildarinnar. Blikar eiga hins vegar leik til góða. Eftir að hafa leikið sem atvinnumaður í bæði Svíþjóð og Bandaríkjunum samdi Kristinn við FH árið 2018. Samningur hans rann út eftir sumarið 2019 og í kjölfarið samdi hann loks við uppeldisfélagið á nýjan leik. Hann fór í gegnum endurnýjun lífdaga á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði alls átta mörk í 14 leikjum í deild og bikar. Hann hefur skorað fimm mörk í 17 leikjum í Pepsi Max deildinni það sem af er sumri ásamt því að skora í 2-1 sigrinum á Austria Vín í Sambandsdeild Evrópu. Alls hefur Kristinn leikið 181 leik fyrir Breiðablik og skorað í þeim 58 mörk. Kristinn Steindórsson er ekki eini leikmaðurinn sem hefur framlengt samning sinn á Kópavogsvelli en miðvörðurinn Viktor Örn Margeirsson gerði slíkt hið sama á dögunum. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Enski boltinn Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Enski boltinn Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sjá meira