Í viðtali við fréttastofu var Borghildur spurð hvers vegna stjórnin skuli vera að bregðast við fyrst núna.
„Einfaldlega vegna þess að það koma fram greinar sem að segja frá atvikum sem að bara hreinlega hafa aldrei ratað inn á borð stjórnar og við vorum bara á engan hátt meðvituð um, sem er alveg svakalega erfitt. Það verður að bregðast við. Við ætlum ekki að standa í því að vera að þagga niður svona hluti, en því miður þá bara hafði stjórn ekki upplýsingar um tiltekið málefni.“
Hér má sjá viðtalið við Borghildi í heild sinni.
Þá segir Borghildur að stjórnin hafi ekki búið yfir upplýsingum um það mál sem kona greindi frá í viðtali fyrr í vikunni þar sem hún sagði frá ofbeldisbroti leikmanns landsliðsins.
Eins og fram hefur komið sagði Guðni Bergsson af sér sem formaður Knattspyrnusambandsins fyrr í dag.
En vissi formaðurinn þá einn af þessu?
„Nei það var náttúrlega sendur póstur á fleiri aðila, en eina sem ég get sagt er að þetta kom aldrei til umræðu á stjórnarfundi. Við fengum ekki upplýsingar. Ég sá umræddan póst fyrst í gær. Það er bara staðan.“
Borghildur segir að vissulega sé það óeðlilegt að formaður upplýsi stjórn ekki um mál af þessum toga en hafa beri í huga að þessi mál séu flókin og erfið.
„Það eru ofboðslega margir hlutir sem spila inn í en það er að mínu mati nauðsynlegt að það séu upplýsingar. Þær þurfa ekki að vera með smáatriðum eða nöfnum eða því um líku, en að sjálfsögðu eiga allir að vita um svona alvarleg málefni.“
Hún segir sambandinu ekki hafa borist margar óformlegar ábendingar um kynferðisbrot eða ofbeldi.
„En hins vegar viljum við hvetja þolendur að koma til okkar og segja okkur frá, því að við getum ekki brugðist við eða breytt neinu þegar við vitum ekki.“
Segir alla stjórnarmeðlimi hafa íhugað afsögn
Sjálf segist Borghildur hafa íhugað að segja af sér. Allir sitjandi stjórnarmeðlimir hafi boðið fram afsögn. Lausnin sé hins vegar ekki fólgin í því að stíga frá málinu og skilja sambandið eftir óstarfhæft.
„Þetta er stór hreyfing og það er margt, margt annað í gangi heldur en þessi ömurlegu mál sem eru núna, en við þurfum að fylgja því ferli og við þurfum að geta haft hér starfsemi,“ segir Borghildur.
„Við verðum að gera þetta af alvöru og við getum ekki bara lagt upp lappirnar og tekið enga ábyrgð og komið ekki neinu í framkvæmd. Það myndi ekki skila neinu.“
Stjórnin er um þessar mundir að stofna starfshóp sem vinnur að jafnréttismálum. Það er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstýra jafnréttismála á skóla- og frístundasviði Reykjavíkur, sem leiðir hópinn og mun það koma í hennar hlut að ráða inn fleiri aðila í hópinn.
„Þetta verður ekki á okkar vegum, þannig að við séum að sitja fundi eða gera nokkurn skapaðan hlut. En við þurfum einfaldlega að fá hóp til þess að geta tekið þátt í því að útrýma kynbundnu ofbeldi og öllu ofbeldi, hvort sem það beinist gagnvart konum eða öðrum minnihlutahópum. Við bara verðum að gera þetta.“
Elísabet Inga Sigurðardóttir ræddi einnig við Gísla Gíslason, hinn varaformann KSÍ, að loknum fundi.
Hér að neðan má svo sjá viðtal Elísabetar við Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ.