Innlent

Til­búin með að­stöðu til að fram­kvæma hrað­próf fyrir smit­gát og stærri við­burði

Eiður Þór Árnason skrifar
Hraðprófin verða tekin í húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut. 
Hraðprófin verða tekin í húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut.  Vísir/vilhelm

Aðstaða til að framkvæma hraðpróf er nú tilbúin í húsnæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut 34. Enn þá er unnið að því að klára uppsetningu tölvukerfis og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið á morgun, 7. september.

Að því loknu verður þeim sem sæta smitgát gert kleift að fara í hraðpróf á Suðurlandsbraut þar sem skimanir hafa farið fram. Áætlað er að þar verði opið frá 8 til 20 virka daga og 9 til 15 um helgar fyrst um sinn.

Þetta kemur fram á vef heilsugæslunnar. Með nýlegri reglugerðarbreytingu er einstaklingum sem eru metnir minna útsettir fyrir Covid-19 heimilað að sæta smitgát í stað sóttkvíar. Einstaklingur sem viðhefur smitgát er gert að fara í hraðpróf á fyrsta degi og síðan aftur á fjórða degi. Þegar neikvæð niðurstaða úr seinna hraðprófinu liggur fyrir er smitgát einstaklings aflétt.

Heimila stærri viðburði

Einnig heimila nýjar reglur að haldnir séu allt að 500 manna viðburðir með því skilyrði að allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi. 

Hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, embætti landlæknis og heilbrigðisráðuneytið unnið að útfærslu á sýnatöku og notkun hraðprófa vegna þessa. Mun fólki standa til boða að fara í hraðpróf sér að kostnaðarlausu og fá niðurstöðuna beint í símann.

Keypt mörg hundruð þúsund hraðpróf

Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafi þegar fest kaup á mörg hundruð þúsund hraðprófum. 

„Við ætlum að stíla inn á að opnunartími verði 8-8. Þá getur fólk líka komið eftir vinnu ef það er til dæmis að fara á viðburð um kvöldið, að þurfa ekki að fara úr vinnu. Þannig að við erum að reyna að teygja okkur í alla kanta þannig að þetta verði ekki mikið mál,“ sagði Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar. Reynir heilsugæslan nú að bæta við sig starfsfólki í ljósi þessa umfangsmikla verkefnis.

Að sögn heilsugæslunnar hefur hún nú tryggt sér nægilegt magn hraðprófa, bæði fyrir höfuðborgarsvæðið og allt landið. Utan höfuðborgarsvæðisins mun framkvæmd hraðprófa fara fram á heilsugæslum.


Tengdar fréttir

Búin að kaupa mörghundruð þúsund hraðpróf

Hraðpróf ættu að geta farið að liðka fyrir 500 manna viðburðahaldi öðru hvorum megin við næstu helgi. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur þegar fest kaup á mörghundruð þúsund hraðprófum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×