Heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindi frá afléttingunum á blaðamannafundi 27. ágúst síðastliðinn þar sem hann sagði að Covid-19 yrði ekki lengur skilgreindur sem sjúkdómur sem ógni dönsku samfélagi. Þess í stað er Covid-19 skilgreindur sem „almennt hættulegur sjúkdómur“.
Nú verða því ekki lengur gerðar kröfur um grímur, fjarlægðarmörk eða bólusetningarvottorð í landinu.
80 prósent fullbólusett
DR segir frá því að Heunicke hafi sagt ákvörðunina tekna vegna hás hlutfalls bólusettra í landinu og sömuleiðis að Danir hafi náð góðum tökum á faraldrinum. Rúmlega 80 prósent Dana teljast nú fullbólusett og hafa dönsk stjórnvöld unnið að því í skrefum síðan í apríl síðastliðinn að opna samfélagið á ný.
Samkomutakmörkunum var fyrst komið á í Danmörku 11. mars 2020, þegar Mette Frederiksen forsætisráðherra tilkynnti um lokun stórs hluta dansks samfélag.
Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að öllum takmörkunum verði aflétt í lok mánaðar. Í Noregi hafa stjórnvöld þar hins vegar ákveðið að fresta frekari afléttingum eftir að ný smitbylgja hófst þar á ný.