Skoðun

Við­reisn fyrir okkur öll!

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Úrslit þingkosninga 25. september eru svo ótrúlega mikilvæg fyrir margra hluta sakir. Það skiptir sköpum fyrir samfélag okkar hverjir sitja við völd, hvaða viðhorf eru ríkjandi og hver forgangsröðun verkefna er.

Samtal og samstarf ríkis og sveitarfélaga skiptir máli

Fyrir nærsamfélagið, sveitarfélögin skiptir þetta meira máli en margra gæti grunað. Ótal margt í þjónustu nærsamfélagsins byggir á ákvörðunum ríkisvaldsins. Þar skiptir öllu að á milli ríkis og sveitarfélaga ríki gott traust, því það er grunnur innihaldsríks samtals og samstarfs. Er þjónusta við almenning í forgangi? Fær samtal og samstarf ríkis og sveitarfélaga það rými sem þarf til þess að þjónusta skili sér til íbúa?

Eitt er að leggja fram pólitíska sýn fyrir land og þjóð og annað að innleiða og framfylgja. Innleiðing þeirrar sýnar sem byggt er á er oft sá hluti verkefnanna sem sveitarfélögin eiga að tryggja.

Við þurfum að geta ráðist í stóru verkefnin, eins og innleiðingu nýrra áherslna aðalnámskrár eða að fylgja eftir fögrum fyrirheitum um velferð barna. Slíkar stórbreytingar á kerfum gerast ekki af sjálfu sér, það vitum við öll sem störfum innan þessara kerfa eða komum að með pólitískum hætti.

Sjálf horfi ég upp á sambandsleysið á milli þeirra sem valdið hafa í mínu sveitarfélagi og stjórnvalda, þó þar sitji sami flokkur báðum megin.

Að ganga í takt til árangurs

Eitt þungbærasta dæmið er ringulreiðin um rekstur hjúkrunarheimila. Sveitarfélögin hvert á eftir öðru afsala sér nú rekstrinum vegna skilningsleysis ríkisvaldsins. Annað íþyngjandi mál er hindranir sem ríkisvaldið setur á fagfólk líkt og talmeinafræðinga. Biðlistar lengjast sífellt, ekki vegna skorts á talmeinafræðingum, heldur vegna afturhaldsemi stjórnvalda um hver megi sinna þjónustunni og hvar.

Viðreisn kerfanna með Viðreisn

Til að tryggja framúrskarandi þjónustu við almenning verða kerfin að tala saman. Við þurfum að byggja brýr á milli þeirra, einfalda þau og gera þannig úr garði að þau virki í raun. Þegar einhver þarf á þessum kerfum að halda eiga þau að grípa viðkomandi hratt og örugglega, hvort sem það er barn sem þarf á talmeinafræðingi að halda eða aldraðir sem þurfa að komast að á hjúkrunarheimilum. Og þá á engu að skipta hvort þjónustan er á hendi ríkis eða sveitarfélags.

Vegna þessa skiptir svo miklu máli að Viðreisn sitji í næstu ríkisstjórn, flokkur sem hefur skýra sýn á mikilvægi þess að einfalda kerfi. Viðreisn er umhugað um að þjónustan í nærsamfélaginu gangi upp. Fyrir alla. Kerfin eru til fyrir fólkið, en ekki fólkið fyrir kerfin.

Gefum framtíðinni tækifæri og kjósum Viðreisn.

Höfundur er bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×