Alls kynnti Apple fjórar nýjar útgáfur af nýjasta iPhone-síma fyrirtækisins. Er þar um að ræða iPhone 13, iPhone 13 Mini, iPhone 13 Pro og iPhone 13 Pro Max. Helstu uppfærslurnar eru stærra batterí, nýr örgjörvi, meira geymsluminni og uppfærð myndavél.
Apple gaf ekki upp hversu stór batteríin verða en gaf þó upp að með nýju stýrikerfi, iOS15, og hinum nýja örgjörva, A15, ætti batteríending símanna að batna um allt að tvo og hálfan tíma.
Nýjung í hönnun er að hakið á framhlið símannna er minna en áður og myndavélarnar tvær sem eru aftan á símanum er raðað upp á ská, en ekki í röð eins og áður. Hafa myndflögurnar í báðum myndavélum verið stækkaðar og ljósopið gert víðara. Þá hefur hristivörn sem finna mátti í iPhone Pro Max 12 verið bætt við iPhone 13-línuna.
Að öðru leyti er ekki um miklar hönnunarbreytingar á milli iPhone 12 og iPhone 13. Að auki kynnti Apple nýtt úr, Apple Watch 7. Þar ber helst að nefna að skjárinn hefur verið stækkaður.
Sjá má allt það helsta úr kynningunni hér að neðan.