Liðin fylgdust að í gegnum fyrri hálfleikinn, en það voru þó Tékkarnir sem að virtust skrefi á undan lengst af.
Selfyssingar tóku þó forystuna rétt fyrir hálfleiksflautið, áður en að Koprivnice jafnaði aftur og staðan var 14-14 þegar gengið var til búningsherbergja.
Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik og liðin héldust í hendur og skiptust á að skora. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður fékk Hergeir Grímsson sína þriðju brottvísun og var því sendur snemma í sturtu.
Eftir það náðu Tékkarnir upp smá forskoti og þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka var munurinn orðin þrjú mörk og allt gat gerst.
Selfyssingar voru þó sterkir á lokakaflanum og náðu að minnka muninn aftur niður í eitt mark. Haukur Páll Hallgrímsson skoraði svo seinasta mark leiksins af vítalínunni og jafnaði metin í 28-28, sem urðu lokatölur leiksins.
Selfyssingar eru því á leið í aðra umferð Evrópubikarkeppninnar þar sem að þeir mæta RK Jeruzalem Ormos frá Slóveníu.