Skoðun

Ekki kjósa odd­vita

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson skrifar

Á höfuðborgarsvæðinu eru oddvitar flestra flokkanna öruggir inn. Atkvæðið þitt getur því fyrst og fremst ráðið hvaða frambjóðendur í baráttusætum hljóti sæti á Alþingi. Mig langar til að beina athygli sérstaklega að þremur frambjóðendum sem eru í slíku sæti.

Jón Steindór Valdimarsson í Reykjavíkurkjördæmi norður

Í Reykjavíkurkjördæmi norður getur atkvæðið þitt skilað inn Jóni Steindóri Valdimarssyni, sem er í 2. sæti á lista Viðreisnar. Jón Steindór hefur verið á þingi í fimm ár og hefur skilað mikilvægum réttarbótum fyrir íslenskt samfélag. Hann lagði fram og fékk í gegn að samþykki yrði sett í forgrunn í skilgreiningu nauðgunar í hegningarlögum. Ef við hefðum ekki notið krafta hans er ólíklegt að það hefði orðið að lögum.

Jón Steindór hefur verið ötull talsmaður þolenda og baráttumaður fyrir jafnrétti. Hann lagði einnig til bætta réttarstöðu þolenda heimilisofbeldis við hjúskaparslit. Þessu til viðbótar hefur hann verið talsmaður nýsköpunar og ábyrgðar í efnahagsstjórn og fékk samþykkta þingsályktunartillögu sem tryggir gæði, hagkvæmni og skilvirkni opinberra fjárfestinga. Ef þetta eru mál sem þú styður er atkvæði þínu vel varið til Jóns Steindórs.

María Rut Kristinsdóttir í Reykjavíkurkjördæmi suður

Í Reykjavíkurkjördæmi suður hefur þú tækifæri til að kjósa Maríu Rut Kristinsdóttur, sem situr í 3. sæti á lista Viðreisnar. María Rut var formaður SHÍ þegar stúdentar höfðuðu dómsmál til að berjast gegn kjaraskerðingu. Hún stofnaði líka Hinseginleikann, var talskona Druslugöngunnar um árabil og fór fyrir samráðshóp innanríkisráðherra um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu.

Á liðnu kjörtímabili spilaði María lykilhlutverk í að móta og ná í gegn frumvarpi Viðreisnar um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Með hennar kraft og reynslu á þinginu munu þessi mál hafa öflugan málsvara og við getum tryggt að sálfræðiþjónustan verði loksins fjármögnuð. Það skiptir máli að María komist inn.

Elín Anna Gísladóttir í Suðvesturkjördæmi

Í Suðvesturkjördæmi getur þú stutt Elínu Önnu Gísladóttur, sem er í 3. sæti á lista Viðreisnar. Elín Anna er verkfræðingur og einn af stofnendum FKA Framtíðar, sem styður ungar konur í því að vaxa og ná lengra í atvinnulífinu. Hún berst fyrir umbótum í heilbrigðiskerfinu, styttingu biðlista og betri velferð. Hún hefur einnig verið leiðandi í allri stefnumótun Viðreisnar í menntamálum og situr fyrir okkar hönd í fræðslunefnd Mosfellsbæjar. Það er mikilvægt að hún komist inn til að tryggja að umbótasinnað fólk í þessum málum hafi sterka rödd.

Ef þú hefur ekki ákveðið þig þá skiptir máli að skoða í kjölinn hvaða fólk er í baráttusætum. Mitt atkvæði fer til Viðreisnar og ég vona að þitt geri það líka.

Höfundur er lögfræðingur og skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×