Upp­legg Allegri virkaði og Juventus vann Evrópu­meistarana

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Federico Chiesa fagnar marki sínu með Massimiliano Allegri, þjálfara Juventus.
Federico Chiesa fagnar marki sínu með Massimiliano Allegri, þjálfara Juventus. Giuseppe Maffia/Getty Images

Juventus vann 1-0 sigur á Evrópumeisturum Chelsea er liðin mættust á Allianz-vellinum í kvöld. Sigurmarkið skoraði Federico Chiesa í upphafi síðari hálfleiks.

Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, sagði fyrir leik að hann ætlaði að prófa nýja „undarlega“ taktík þar sem lið hans væri án Alvaro Morata og Paulo Dybala í kvöld. Það virkaði heldur betur þar sem lærisveinar hans unnu vægast sagt mikilvægan sigur á Chelsea.

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Chiesa eftir góða sendingu Federico Bernardeschi inn fyrir vörn Chelsea. Chiesa var þarna að skora sitt fimmta mark í síðustu fimm leikjum fyrir Juventus í Meistaradeildinni.

Þrátt fyrir að vera í leit að marki ákvað Thomas Tuchel að setja þýska framherjann Timo Werner ekki inn á og fór það svo að Juventus vann leikinn 1-0.

Juventus er því á toppi H-riðils með sex stig að loknum tveimur umferðum. Þar á eftir koma Chelsea og Zenit St. Pétursborg með þrjú stig á meðan Malmö rekur lestina án stiga.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira