Innlent

Katrín heimsótti forseta Íslands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá fundi Katrínar og Guðna á skrifstofu forsetans í Sóleyjargötu.
Frá fundi Katrínar og Guðna á skrifstofu forsetans í Sóleyjargötu. Forseti Íslands

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands átti í morgun fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Þar segir að rætt hafi verið um viðræður hennar, Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formanns Framsóknarflokksins, undanfarna daga, og þau áform að þessir þrír flokkar haldi ríkisstjórnarsamstarfi áfram. 

Forseti segist mun áfram fylgjast með gangi mála eftir þörfum.

Formennirnir þrír eru nú á fundi í Ráðherrabústaðnum þar sem viðræðurnar halda áfram. Þau tjáðu fréttastofu fyrir fundinn að óformlegar viðræður gætu orðið formlegar eftir helgi.

Nánar að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×