Innlent

Of­beldis­for­varnar­skólinn stendur fyrir söfnun

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnastjóri (t.v) og Benedikta Sörensen Valtýsdóttir skólastjóri (t.h). Auk þeirra starfa þrír aðrir hjá skólanum. Myndin er fengin af Karolina Fund.
Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnastjóri (t.v) og Benedikta Sörensen Valtýsdóttir skólastjóri (t.h). Auk þeirra starfa þrír aðrir hjá skólanum. Myndin er fengin af Karolina Fund.

Söfnun stendur nú yfir á vegum ofbeldisforvarnarskólans en í dag er alþjóðadagur ofbeldisleysis. Sjónum er nú sérstaklega beint að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi.

Skólastjóri er Benedikta Sörensen Valtýsdóttir, Benna, en hún stofnaði skólann eftir að hafa unnið í félagsmiðstöðum í fimmtán ár. Með henni í verkefninu er Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnastjóri.

Ofbeldisforvarnarskólinn býður upp á námskeið, fyrirlestra og fræðslu um ofbeldi. Eins og nafnið ber með sér er meginmarkmið skólans að kenna fólki, ungmennum þá sérstaklega, að grípa til annarra leiða en ofbeldis. Í fræðslu skólans er einnig farið yfir það hvernig unglingar geti brugðist við ef þeir verða vitni af ofbeldi.

Unga fólkið drifkrafturinn

Þegar um samfélagsleg mál eins og kynbundið ofbeldi er að ræða telur Benna telur mikilvægt að ungt fólk fái sjálft að ígrunda og velta málefninu fyrir sér. Markmiðið er að öll ungmenni á landinu hafi greiðan aðgang að forvörnum gegn ofbeldi og starfsfólki sem getur frætt þau. Þannig öðlist þau dýpri skilning á efninu með því að fá innsýn inn í veruleika ungra þolenda, gerenda eða aðstandenda.

„Við sjáum það alveg að þegar kemur að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi þá hefur ungt fólk verið svona drifkrafturinn í hverri byltingunni á fætur annarri og þau eru að gera þessar breytingar á samfélaginu okkar sem við þurfum.“

Ný vefsíða skólans ber heitið „Yfir strikið“ en hún verður sérstaklega hönnuð fyrir tæki með snertiskjá. Síðan er byggð þannig upp að unglingar fái upp örsögu sem fjallar um óheilbrigð samskipti eða ofbeldi. Unglingarnir hafa þá tækifæri til að velta málinu fyrir sér og fá fræðslu í kjölfarið.

Söfnunina má nálgast á Karolina Fund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×