Afhverju faldi ég vandann? Eymundur L. Eymundsson skrifar 10. október 2021 14:00 Ég fór að finna fyrir andlegum vanda þegar ég byrjaði í grunnskóla 1974. Ég fór að leika trúð um 12 ára aldur til að fela andlega vandann og óttann. Mig langaði ekki að lifa í heljargreipum óttans en sá enga útgönguleið úr andlegum vanda. Til þess að lifa þurfti ég að setja upp leikrit þar sem ég var leikstjórinn. Ég var reiður yfir því hvernig mér leið, reiður í eigin garð. Herbergið er minn besti vinur. Ég veit ekki af hverju ég roðna, klökkna, hef litla einbeitingu, brothætt taugakerfi, ekkert sjálfstraust eða sjálfsvirðingu. Ég var viss um allir skömmuðust sín fyrir mig og leið líka illa innan um fjölskylduna. Ég leyfi öðrum að gera grín að mér og tek þátt í því sem trúður svo enginn geti séð hvernig mér líður. Ég skammaðist mín fyrir sjálfan mig. Ég leit út fyrir að fúnkera félagslega, en eftir að ég varð fimmtán sextán ára fór ég aldrei með félögum í bíó og forðaðist að taka þátt í mannamótum nema áfengi væri við hönd. Ég var með afsakanir en auðvitað dauðlangaði mig en andlegi vandinn og óttinn hótuðu mér miskunnarlaust að ég yrði mér til skammar. Ég prófaði framhaldsskóla en entist aðeins í tvo mánuði þar sem ég gat ekki verið innan um aðra. Ég fór að vinna 16 ára og var á sama vinnustað í 20 ár. Samt var ég alltaf virkur í íþróttum. Ég var meira að segja í félagsíþrótt, spilaði fótbolta með Þór og Magna Grenivík þótt mér liði illa. Ég fór í Magna þar sem ég hafði ekki sjálfstraust til að vera í Þór og Magni var minna félag. Ég þurfti að hætta í boltanum 1994 þar sem ég greindist með bein í bein í mjaðmarliðnum. Ég var orðinn 38 ára gamall árið 2005 og var staddur á verkjasviði á Kristnesi í Eyjafirði eftir mína aðra mjaðmaliðaskiptingu sem heppnaðist ekki vel. Ég fékk fræðslu á Kristnesi og bæklinga um kvíða, félagsfælni og þunglyndi. Ég brotnaði saman það voru til lýsingarorð á mínum andlega vanda og það var heiti sem kallast geðraskanir og það var von. Bæklingarnir sögðu mína sögu og útskýrðu af hverju mér hafði liðið svona illa síðan ég var krakki með sjálfsvígshugsanir nær daglega. Það voru ástæður fyrir myrkrinu og svartholinu sem hægt var að vinna með. Þetta var ekki mér eða neinum öðrum að kenna hvernig mér leið og óþarfi að skammast sín fyrir það frekar en ég væri með krabbamein. Ég ákvað strax á Kristnesi að leita mér hjálpar og horfa fram á veginn með opnum huga og jákvæðni að leiðarljósi. Það er ekki allt neikvætt í kerfinu Mikið af fagfólki vinnur frábært starf undir erfiðum aðstæðum þar sem stjórnvöld hafa ekki gert nóg til að tryggja gott vinnuumhverfi. Ég er svo heppinn að hafa fengið að kynnast mismunandi úrræðum og er þakklátur þeim öllum og því fagfólki sem vinnur þar. Frá 2005 hef ég unnið vel í mínu lífi með hjálp fagmanna og fólks með reynslu af geðröskunum. Þau úrræði sem ég hef notað eru heimilislæknir, Starfsendurhæfing Norðurlands, SÁÁ, Heilsustofnun í Hveragerði sem ég fer reglulega til. Þrisvar sinnum á geðsvið Reykjalundar sem gera samtals fjóra mánuði. Geðdeild á Akureyri í fjórar vikur 2008 og í félagskvíðahóp í framhaldi af geðdeild. Ég útskrifaðist sem ráðgjafi úr Ráðgjafaskóla Íslands í desember 2009 og sem félagsliði úr Símey vorið 2016. Ég bjó í Reykjavík frá 2009 til 2012 og stundaði Hugarafl með notendum og fagfólki. Ég er einn af stofnendum Grófarinnar ásamt fleiru góðu fólki bæði fagmönnum og fólki með reynslu af geðröskunum. Ég hef farið í fimm ár með öðru góðu fólki úr Grófinni með geðfræðslu í grunn- og framhaldsskóla á Akureyri í samvinnu við forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar. Áður en við byrjuðum að fræða nemendur grunnskólana var farið í alla grunnskólan til að fræða kennara og starfsfólk. Það vakti mikla ánægju og fengum mikið lof fyrir en auk þess hefur geðfræðsluteymið farið í nærsveitir og víða um land. Geðfræðslan hefur heppnast mjög vel og eru ungmenni mjög þakklát að fá fólk sem talar frá hjartanu um sína persónulegu reynslu og bjargráð. Ég veit sjálfur að ef einhver hefði komið þegar ég var í 9. bekk og hefði sagt sína sögu og lýst einkennum myndi það hafa útskýrt mína líðan. Að geta séð manneskju með reynslu af kvíða og þunglyndi hefði gefið mér tækifæri til að takast á við sjálfan mig með faglegri aðstoð. Þannig að það er mikil vinna að baki en guð minn almáttugur hvað ég er þakklátur öllum þeim sem hafa hjálpað mér uppúr svartholinu. Ég veit að ég er ekki fullkominn frekar en aðrir en ég reyni að gera mitt besta eins og flestir vil ég trúa. Afleiðingar af geðröskunum geta leitt af sér stoðkerfisvandamál og í dag hef ég farið í þrjár mjaðmaliðaskiptingar sömu megin. Ég glími í dag við slitgigt og króníska verki sem sést ekki alltaf en skapa líka síþreyta. Ég nefni stoðkerfisvandan svo að kerfið geri sér almennilega grein fyrir að afleiðingar af geðröskunum eru margbreytilegar sem fylgir meiri kostnaður. Ég er viss um að ég væri í fullri vinnu í dag og gæti stundað mín áhugamál ef hjálp í æsku hefði ég fengið. En nú vitum við meira og gott að hafa lifað af og geta látið gott af sér leiða. Með fyrirbyggjandi íhlutun að taka á vandanum strax er ég viss um að ávinningur verði fljótur að skila sér fyrir samfélagið. Heildræn nálgun fyrir fjölskylduna er það sem þarf að vinna að og þannig sköpum við verðmæti samfélaginu til heilla. Ekki fela vandann. Góðar stundir. Hægt er að sjá dagskrá 10.október á Akureyri undir https://www.facebook.com/valdefling Höfundur er ráðgjafi og félagsliði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Halldór 19.10.24 Halldór Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ert þú ég eða verð ég þú Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Ákall um annars konar hagkerfi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómstóla Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur skrifar Skoðun Stjórnvöld bregðist við eggjaskorti með afnámi tolla Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Endurhugsum íslenskt skólakerfi: Ný sýn á nám og kennslu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Þankar um framtíð landsins okkar Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Er Landsvirkjun til sölu? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar pólitík hindrar framför Hjörtur Sveinsson skrifar Skoðun Nú á lýðræðið næsta leik Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi? Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Dagur í grunnskóla Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Áskorun - Þingmenn, sýnið kjósendum stórhug skrifar Skoðun TikTok, upplýsingaóreiða og stjórnvöld Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Taktu þátt í lýðræðinu með okkur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Neyðarmóttakan; fyrir þolendur framhjáhalds Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun