Tónlist

Björk hélt sína fyrstu tón­leika á Ís­landi í þrjú ár

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Björk hélt sína fyrstu tónleika af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í gær. Tónleikarnir voru hennar fyrstu á Íslandi í þrjú ár.
Björk hélt sína fyrstu tónleika af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í gær. Tónleikarnir voru hennar fyrstu á Íslandi í þrjú ár. Getty/Santiago Felipe

Björk hélt sína fyrstu tónleika af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í gær. Hún kom fram ásamt strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Viktors Orra Árnasonar. Flutt voru lög af plötunum Post, Vespertine og Dancer in the Dark.

Tónleikarnir sem eru í umsjón Iceland Airwaves áttu upphaflega að fara fram í ágúst á síðasta ári en þeim þurfti að fresta vegna heimsfaraldursins.

Um er að ræða fyrstu tónleika sem Björk heldur á Íslandi í þrjú ár og rennur hluti ágóða tónleikaseríunnar til Kvennaathvarfsins. Tónleikarnir hafa ólíka dagskrá og allir sína sérstöðu.

Kjóll Bjarkar vakti mikla athygli en hann var hannaður af japanska hönnuðinum Tomo Koizumi. Þá skartaði Björk grímu og hring eftir hönnuðinn James Merry og eyrnalokkum frá Aurum.

Á þessum fyrstu tónleikum flutti Björk eftirfarandi lög:

  1. Stonemilker
  2. Aurora
  3. I've Seen it All
  4. Sun in My Mouth
  5. You've Been Flirting
  6. Isobel
  7. Hyperballad
  8. Harm of Will
  9. Bachelorette
  10. Unison (flutt í fyrsta skipti síðan árið 2011)

RÚV var með beina útsendingu frá tónleikunum sem hægt er að horfa á hér.

Næstu tónleikar fara fram sunnudaginn 24. október þar sem Björk mun koma fram ásamt Hamrahlíðarkórnum.


Tengdar fréttir

Björk getur loksins haldið tónleikana sína í Reykjavík

„Það gleður okkur að staðfesta að tónleikaserían Björk Orekstral - Live From Reykjavík getur loksins farið fram í Eldborgarsal Hörpu á dögunum 11., 24., 31. október og 15. nóvember,“ segir í nýrri tilkynningu frá Senu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.