Viðskipti innlent

Færri konur ráðnar í fram­kvæmda­stjóra­stöður en í fyrra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo.
Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo.

Á árinu 2021 hafa konur verið ráðnar framkvæmdastjórar fyrirtækja í fimmta hvert skipti. Ný gögn frá Creditinfo sýna samdrátt í skipun kvenna á milli ára úr 24 prósent tilfella niður í 20 prósent. Í fjögur skipti af fimm er karlmaður ráðinn í starfið.

Konur eru nú framkvæmdastjórar í um 18 prósent virkra fyrirtækja, en þá er horft til um sex þúsund fyrirtækja sem eru með virkan rekstur og tekjur yfir 30 milljónum króna síðustu þrjú ár. Konur bera enn skarðari hlut frá borði ef horft er til rúmlega eitt þúsund tekjuhæstu fyrirtækjanna, en þá er hlutfallið einungis um 13 prósent.

Í dag fer fram stafræn ráðstefna Jafnvægisvogar Félags kvenna í atvinnurekstri. Creditinfo, sem býr yfir stærsta gagnabanka viðskiptaupplýsinga á Íslandi, hefur viljað styðja við verkefni Jafnvægisvogarinnar með gögnum og sérþekkingu.

„Við sjáum í gögnum okkar að almennt séð lækkar hlutfall kvenna í framkvæmdastjórastöðu eftir því sem fyrirtæki eru stærri. Niðurstaðan er í takti við það sem við höfum séð undanfarin ár, en vissulega mikil vonbrigði að hægt hafi aftur á ráðningum kvenna í stöður framkvæmdastjóra. Fyrir liggur að með þessu áframhaldi koma markmið Jafnvægisvogar FKA um að fyrir árið 2027 verði hlutfall kynjanna í framkvæmdastjórnum fyrirtækja að minnsta kosti 40/60 ekki til með að nást. Til þess þyrfti stórátak í ráðningum kvenna í hóp stjórnenda,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar Creditinfo á Íslandi.

Sjá má í tölum Creditinfo að í hópi eitt þúsund tekjuhæstu fyrirtækjanna er hlutfall kvenna meðal æðstu stjórnenda hæst í ferðaþjónustu og afþreyingu, eða 20 prósent, en lægst á meðal framleiðslufyrirtækja, einungis 8 prósent.

„Tölur um ráðningar bera ekki með sér sérstök merki um breytingar, heldur að hlutfall kvenna af nýráðningum framkvæmdastjóra hafi verið fremur stöðugt síðasta áratug, um fimmtungur ráðninga. Vegna þess að einungis um tíundipartur fyrirtækja skiptir um framkvæmdastjóra á ári hverju er ljóst að taka mun tíma að ná þeim hlutföllum sem stefnt hefur verið að. Til að hlutfall kynjanna í framkvæmdastjórastöðum verði nokkuð jafnt fyrir árið 2027, þyrfti hlutfall kvenna af nýráðningum strax að verða um 70%,“ segir í tilkynningu frá Creditinfo.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×