Viðskipti innlent

Bein út­sending: Dagur verk­fræðinnar haldinn í sjötta sinn

Atli Ísleifsson skrifar
Á þriðja tug fyrirlestra og kynninga verða í boði í þremur fundasölum en dagskráin hefst klukkan 13. Hægt verður að fylgjast með útsendingum í spilara neðar í fréttinni.
Á þriðja tug fyrirlestra og kynninga verða í boði í þremur fundasölum en dagskráin hefst klukkan 13. Hægt verður að fylgjast með útsendingum í spilara neðar í fréttinni. Aðsend

Dagur verkfræðinnar verður haldinn í sjötta sinn á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Á þriðja tug fyrirlestra og kynninga verða í boði í þremur opnum fundasölum en dagskráin hefst klukkan 13. Hægt verður að fylgjast með útsendingum í spilurum að neðan.

Í tilkynningu segir að markmiðið með Degi verkfræðinnar sé að kynna verkfræðina sem fag, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga.

Á Degi verkfræðinnar verður Teningurinn veittur í fyrsta sinn en hann er viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Viðurkenningin er veitt fyrir verkefnið í heild og er það eigandi (bakhjarl) verkefnisins sem hana hlýtur. Verkefni sem eru tilnefnd geta verið af ýmsum toga, til dæmis framkvæmdaverkefni, nýsköpunarverkefni, hugbúnaðarverkefni eða umbótaverkefni.

Teninginn átti að veita í fyrsta sinn í í fyrra en vegna Covid-19 verða veittar tvær viðurkenningar í ár, fyrir árin 2019 og 2020.

Dagur verkfræðinnar 2021

Hilton Reykjavík Nordica, föstudaginn 22. október kl. 13 – 17.

  • 13:00 Setning. Svana Helen Björnsdóttir, formaður VFÍ.
  • 13:10 Ávarp. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
  • 13:20 Teningurinn afhentur í fyrsta sinn. Viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands.

Salur A: Nýir tímar, ný tækni

Dagskrá:

  • Stafrænt Ísland – island.is. Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
  • Vöðvastýrðir gervifætur. Að þróa tækni fyrir fólk. Jóna Sigurðardóttir, heilbrigðisverkfræðingur hjá Össuri. 
  • Spá fyrir flæði Covid-19 sjúklinga í umsjón Landspítala. Tómas Philip Rúnarsson, prófessor í iðnaðarverkfræði við HÍ. 
  • Svefnbyltingin og gervigreind. Erna Sif Arnardóttir lektor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
  • Kl. 15:10 – 15:40 Kaffihlé
  • Upplýsingatækni og BIM í mannvirkjagerð. Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, þróunarstjóri hjá ÍSTAK.
  • Snjallar samgöngur ITS Ísland. Lilja G. Karlsdóttir sviðsstjóri hjá VSB og formaður ITS Ísland.
  • Innviðir á Reykjanesskaga. Verkfræðileg úrlausnarefni vegna eldgosa. Hörn Hrafnsdóttir vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís.
  • Verkfræðinemar HÍ. Team Spark kappakstursbíllinn. Tæknifræði- og verkfræðinemar HR. RU Racing kappakstursbíllinn.
  • Stjórn: Kolbrún Reinholdsdóttir, í Kvennanefnd VFÍ, verkfræðingur hjá Eflu.

Salur B: Verkfræðin og umhverfið

  • Grænar lausnir. Eggert Benedikt Guðmundsson, verkfræðingur, forstöðumaður Grænvangs.
  • Greenfo. – Hvert er þitt raunverulega kolefnisspor? Stefán Kári Sveinbjörnsson, verkfræðingur hjá Greenfo.
  • Framleiðsla á rafeldsneyti og grænni efnavöru úr koltvísýringi. Björn Harðarson, verkfræðingur hjá Carbon Recycling International.
  • Kl. 15:10 – 15:40 Kaffihlé
  • Ný orkustefna fyrir Ísland Guðrún A. Sævarsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík.
  • Græna leiðin í byggingum. Sigríður Ósk Bjarnadóttir dósent við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.
  • Sjálfbærni samgangna og skipulags. – BREEAM og samgöngumat. Ólöf Kristjánsdóttir, fagstjóri samgangna hjá Mannviti.
  • Nýtt samgöngulíkan höfuðborgarsvæðisins. Albert Skarphéðinsson, samgönguverkfræðingur hjá Mannviti.

Salur H – I: Verkfræðin er allsstaðar

  • Lærdómur af Flateyrarflóðunum 2020: Hönnun snjóflóðavarnargarða og eðli snjóflóða Kristín Martha Hákonardóttir verkfræðingur hjá Verkís.
  • Hlutverk verkfræðinga í kjölfar jarðskjálfta. Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Rainrace.
  • Snjóflóðavarnir á Svalbarða og vefhandbók snjóflóðavarna fyrir Noreg. Árni Jónsson, byggingarverkfræðingur hjá Hnit.
  • Mat á stífnieiginleikum jarðvegs með yfirborðsbylgjumælingum. Elín Ásta Ólafsdóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands.
  • 15:10 – 15:40 Kaffihlé
  • Rafeindageislar: Notkun og nýlunda. Ágúst Valfells, deildarforseti Verkfræðideildar HR.
  • Ásmundarsalur – Samspil hljóðvistar og byggingareðlisfræði. Ólafur Hjálmarsson verkfræðingur hjá Trivium ráðgjöf.
  • Introducing the Electrical Power Systems Laboratory (EPS-Lab) í HÍ. Zhao Yuan, lektor við rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ.
  • Umbætur í fráveitu. LEAN. Páll Ragnar Pálsson, verkstjóri fráveitu hjá Veitum ohf.
  • Stjórn: Gyða Björg Sigurðardóttir, hjá Ráður ehf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×