Viðskipti innlent

Hundruð milljóna króna deila um leigu­mál send aftur í hérað

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Deilan snerist um leigugreiðslur á þessu hóteli, gráu byggingunni fyrir miðju.
Deilan snerist um leigugreiðslur á þessu hóteli, gráu byggingunni fyrir miðju. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í hundruð milljóna krónu deilu Íþaka fasteigna og Fosshótela um leigugreiðslur vegna Fosshótels við Höfðatorg. Héraðsdómur þarf því að taka málið aftur fyrir.

Málið snýst um leigugreiðslur Fosshótela til Íþöku vegna Fosshótels við Höfðatorg í kórónuveirufaraldrinum. Hótelinu var lokað í mars 2020 vegna faraldursins og hættu rekstraraðilar hótelsins að greiða eigenda fasteignarinnar, Íþöku, leigu, alls frá 1. apríl 2020 til 1. september sama ár.

Fosshótel bar fyrir sig að félaginu bæri ekki að greiða leigu fyrir umrætt tímabil meðal annars á grundvelli ákvæðis í leigusamningnum um ófyrirséð og ófyrirsjáanleg atvik, ólögfestri reglu kröfuréttar um óviðráðanleg ytri atvik, svokallað force majeure.

Íþaka krafðist hins vegar að fá leiguna greidda, alls um 420 milljónir króna fyrir umrætt tímabil.

Dæmt í héraðsdómi til að greiða hálfa leigu

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Fosshótel bæri að greiða hálfa húsaleigu fyrir umrætt tímabil. Eftir dóm héraðsdóms óskaði Íþaka eftir því að málinu yrði skotið beint til Hæstaréttar, framhjá millidómstiginu Landsrétti.

Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu að senda dóminn aftur heim í hérað.Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur varð við þeirri beiðni á grundvelli þess að málið væri talið hafa þýðingu fyrir framkvæmd fjölda samninga þar sem forsendur hafa breyst vegna heimsfaraldursins, brýnt væri að fá niðurstöðu Hæstaréttar með skjótum hætti.

Annmarkar á dómi héraðsdóms

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í málinu í dag og í honum segir að í dómi héraðsdóms hafi einungis verið dæmt um viðurkenningarkröfu Fosshótela um að leigusamningi yrði tímabundið vikið til hliðar. Að þeirri niðurstöðu fenginni hafi hins vegar ekki verið leyst úr greiðslukröfu Íþöku.

Segir í dómi Hæstaréttar að slík dómsúrlausn veiti Íþöku ekki heimild til þess að leita aðfarar, jafn vel þó að ráða megi af dómsorði dóms héraðsdóms að Fosshótelum beri að greiða helming leigunnar.

Er þetta að mati Hæstaréttar slíkur annmarki á dómi héraðsdóms að ekki verði hjá því komist að ómerkja hann án kröfu og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Er það því niðurstaða Hæstaréttar að ómerkja dóm héraðsdóms og senda málið aftur heim í hérað.

Aðilar ekki sammála um hvernig leiðrétta ætti dóminn

Einnig er sérstaklega tekið fram að Hæstiréttur fallist ekki á það með aðilum málsins að um sé að ræða bersýnilega villu í dómi sem dómara sé heimilt að leiðrétta. Þá hafi það komið fram við flutning málsins við Hæstarétt að aðilum beri ekki saman um hvernig leiðrétta skuli dóminn með tilliti til forsenda hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×