Heimsmeistararnir þurftu oddaleik til að tryggja sér sæti í úrslitum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. október 2021 23:00 Liðsmenn DWG KIA fögnuðu vel og innilega þegar ljóst var að þeir eru á leið í úrslit annað árið í röð. Lance Skundrich/Riot Games Inc. via Getty Images Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA þurftu oddaleik til að tryggja sér sæti í úrslitum Heimsmeistaramótsins í League of Legends er liðið mætti gamla stórveldinu T1 í Laugardalshöll í dag. DWG KIA lenti 2-1 undir, en þetta voru fyrstu tvö töp liðsins á mótinu.
Fyrsti leikur liðanna var endaði með nokkuð öruggum sigri heimsmeistaranna. Liðið náði ágætis forystu eftir rúmlega tíu mínútna leik og sú forysta jókst smám saman þangað til að DWG KIA sigraði eftir tæplega 29 mínútna leik. Annar leikur liðanna var mun jafnari en sá fyrsti. T1 náði smávægilegu forskoti eftir um 15 mínútna leik, en það forskot var þó alls ekki nóg til að hægt væri að segja að T1 hefði nokkra yfirburði í leiknum. Eftir 25 mínútna leik var allt jafnt, en þá fóru leikmenn T1 hægt og rólega að taka yfir. T1 tók svo algjöra stjórn á leiknum eftir rúmlega 35 mínútur þegar liðið stal Baron af DWG KIA og eftir það var ekki aftur snúið. T1 varð því fyrsta liðið til að vinna leik gegn ríkjandi heimsmeisturum á þessu móti, en DWG KIA hafði unnið alla tíu leiki sína fram að þessu. WE HAVE A SERIES:@T1LoL win game 2! #Worlds2021 pic.twitter.com/VZ1vVajdOW— LoL Esports (@lolesports) October 30, 2021 Íþriðju viðureign liðanna höfðu liðsmenn DWG KIA smávægilegt forskot fyrstu tuttugu mínútur leiksins. T1 sýndi þolinmæði og náði forystunni og tíu mínútum síðar höfðu þeir byggt upp gott forskot. Eftir 38 mínútna leik var sigurinn þeirra og T1 þurfti því aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér sæti í úrslitum. Fjórði leikur liðanna var virkilega jafn fyrstu mínúturnar, en fljótlega fóru liðsmenn DWG KIA að taka yfir, og þá sérstaklega þeirra besti maður, Showmaker. Eftir rúmlega tuttugu mínútna leik var brekkan orðin ansi brött fyrir T1, og fimm mínútm síðar virtist hún óyfirstíganleg. Það reyndist rétt og DWG KIA sigraði eftir um hálftíma leik, og tryggðu sér um leið oddaleik um sæti í úrslitum þheimsmeistaramótsins. WHAT A SERIES:WE ARE GOING TO GAME 5! #Worlds2021 pic.twitter.com/4zh3ocTo0P— LoL Esports (@lolesports) October 30, 2021 Oddaleikurinn bauð upp á mikla spennu, sem betur fer fyrir hlutlausa aðdáendur League of Legends. Liðin héldust nokkurn vegin í hendur lengi vel, en DWG KIA virtist þó vera skrefi á undan eftir um tuttugu mínútna leik. Tæpum tíu mínútum síðar tóku þeir sinn fjórða dreka, og þar með drekasál, og því ljóst að DWG KIA hafði yfirhöndina. Örfáum mínútum síðar virtust þeir vera búnir að vinna leikinn, en þrír meðlimir T1, Oner, Keria og Gumayusi, björguðu liðsfélögum sínum fyrir horn, og gamla stórveldið fékk því nokkrar mínútur í viðbót til að snúa leiknum sér í hag. Eftir rúmar 35 mínútur af League of Legends náðu liðsmenn DWG KIA þó Elder Dragon, og í kjölfarið af því var leikurinn búinn fyrir T1. Eftir hetjulega baráttu voru þeir úr leik, en ríkjandi heimsmeistarar eru komnir í úrslit þar sem þeir fá tækifæri til að verja titilinn næstkomandi laugardag gegn annaðhvort Edwarg Gaming eða Gen.G. BACK-TO-BACK FINALS #Worlds2021 pic.twitter.com/BsHG08usdC— LoL Esports (@lolesports) October 30, 2021 Seinni undanúrslitaviðureginin fer fram á morgun en þá mætast einmitt Edward Gaming og Gen.G. Líkt og áður veðrur hægt að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport frá klukkan 12:00.
Rafíþróttir League of Legends Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dusty enn á toppnum eftir sigur á Hetti Höfuðandstæðingarnir tveir skiptu sjöttu umferð á milli sín Dvergarnir voru of stór biti fyrir Coup de Brains að kyngja Selir enn á hælum Þórs í Overwatch Þrjú efstu örugg áfram í Valorant Þríframlengt í „gjörsamlega svakalegum“ leik Keflvíkingar spyrntu sér af botninum Dusty sigraði fjandvinaslaginn við Ármann Kristófer komst upp fyrir Denas í Fortnite Bráðabani í æsispennandi netskákeinvígi Tæknin varð Breiðnefjum fjötur um fót í Dota2 Þór sigraðist á Selum í toppbaráttunni Topplið Venus hélt Grýlum á botninum Fyrsti sigur Rafík innsiglaður með „jarðsetningu“ á Sögu Grænlensku börnin spiluðu tölvuleiki með stjörnur í augunum Hnífjafnt á toppnum í Rocket League Míludeildin er stærsta Valorant-mótið frá upphafi Venus skellti Skagamönnum á botninn Denas og Kristófer stinga af í ELKO-Deildinni TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis Sjá meira