Viðskipti innlent

Kjara­þróun komið veru­lega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig

Atli Ísleifsson skrifar
BHM segir að mismunandi áhrif krónutöluhækkana á launahækkanir eftir launastigi í kjarasamningslotunni 2019 til 2021 hafi komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig.
BHM segir að mismunandi áhrif krónutöluhækkana á launahækkanir eftir launastigi í kjarasamningslotunni 2019 til 2021 hafi komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig. Vísir/Vilhelm

Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019. Hækkaði launavísitalan allt að tvöfalt meira hjá láglaunahópum innan ASÍ og BSRB en launavísitala háskólamenntaðra með millitekjur hjá BHM og Kennarasambandi Íslands.

Þetta er niðurstaða könnunar BHM, en í tilkynningu lýsir félagið yfir þungum áhyggjum af stöðunni og að hætt sé við að aukning kaupmáttar hjá háskólamenntuðum verði að engu á næstu misserum haldi verðbólga áfram að aukast. Þróunin hafi komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig.

Samkvæmt nýrri skýrslu kjaratölfræðinefndar hækkaði launavísitalan á opinberum markaði á tímabilinu mars 2019 til júní 2021 um 24-43% hjá félagsmönnum ASÍ og BSRB, en um 15-22% hjá BHM og KÍ.

Hækkanir á almennum markaði voru ívið minni eða 17-20% hjá ASÍ og BSRB samanborið við 15% hjá BHM. Munurinn er mestur hjá Reykjavíkurborg þar sem hækkanir hjá ASÍ voru 43% eða tvöfalt meiri en hækkanir hjá BHM og rúmlega tvöfaldar á við hækkanir hjá KÍ. Munurinn liggur að mestu í mismunandi áhrifum krónutöluhækkana eftir launastigi sem og styttingu vinnuvikunnar.

Litlar kaupmáttarhækkanir meðal háskólamenntaðra gætu orðið að engu

Ef aðeins er horft til launabreytinga, þ.e. án áhrifa styttri vinnutíma, má sjá að kaupmáttaraukning meðal háskólamenntaðra hjá BHM var á bilinu 5-10% á tímabilinu 2019-2021. Á sama tíma mældist kaupmáttaraukning félagsmanna ASÍ 8-27%. Fari verðbólga hækkandi á næstu misserum er hætt við að kaupmáttaraukning háskólamenntaðra eftir kjaralotuna þurrkist út,“ segir í tilkynningu BHM.

Félagið segir að mismunandi áhrif krónutöluhækkana á launahækkanir eftir launastigi í kjarasamningslotunni 2019 til 2021 hafi komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig. „Að auki hafa lágtekjumiðaðar skattkerfisbreytingar á síðasta kjörtímabili minnkað hvatann til menntunar enn frekar. Ljóst er að vanmat menntunar á Íslandi er orðin sérstök efnahagsleg áskorun.“

Nánar má lesa um könnunina á heimasíðu BHM






Fleiri fréttir

Sjá meira


×