Viðskipti innlent

Hækka líf­eyris­greiðslur sjóðs­fé­laga um tíu prósent

Atli Ísleifsson skrifar
Hækkunin er sögð tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hefur styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins.
Hækkunin er sögð tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hefur styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Vísir/Vilhelm

Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hyggst hækka áunnin lífeyrisréttindi í sameignardeild sjóðsins um tíu prósent sem leiðir til samsvarandi hækkunar lífeyrisgreiðslna. Sjóðsfélagar mega einnig eiga von á eingreiðslu sem nemur að meðaltali 76 þúsund króna um áramót.

Í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum segir að hækkunin miðist við síðastliðin áramót. Hækkunin sé tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hafi styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. 

„Hækkun greiðslna elli-, örorku- og makalífeyris kemur til framkvæmda í nóvember. Samhliða mun sjóðurinn greiða í eingreiðslu uppsafnaða hækkun frá síðastliðnum áramótum. Eingreiðslan nær til um tuttugu og eitt þúsund sjóðfélaga og nemur rúmum 1,6 milljörðum króna eða að meðaltali um 76 þúsund krónum fyrir hvern lífeyrisþega, allt eftir fjárhæð áunninna lífeyrisréttinda hvers og eins.

Sjóðfélagar sem fá einnig greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins eru hvattir til þess að huga að því hvort tilefni sé til að uppfæra tekjuáætlun hjá stofnuninni.

Afrakstur farsæls rekstrar

Það er stjórn og starfsmönnum lífeyrissjóðsins sérstök ánægja að tilkynna sjóðfélögum um hækkun áunninna lífeyrisréttinda sem byggir á góðri ávöxtun eigna undanfarin ár. Meðalraunávöxtun eigna síðustu 10 ára er 6,7%, síðustu 20 ára 4,5% og síðustu 30 ára 5,4%,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×