Innlent

Við­byggingar og sam­eigin­legur ung­linga­skóli meðal hug­mynda í skóla­málum Laugar­nes- og Lang­holts­hverfis

Þorgils Jónsson skrifar
Talsverð fjölgun hefur verið í þremur skólum í Laugarnes- og Langholtshverfi síðustu árin og ekki útlit fyrir að linni næstu ár. Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar kynnti í dag fyrir borgarráði þrjár sviðsmyndir til úrbóta í húsakosti til að bregðast við fjölguninni.
Talsverð fjölgun hefur verið í þremur skólum í Laugarnes- og Langholtshverfi síðustu árin og ekki útlit fyrir að linni næstu ár. Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar kynnti í dag fyrir borgarráði þrjár sviðsmyndir til úrbóta í húsakosti til að bregðast við fjölguninni. Reykjavíkurborg

Þrjár sviðsmyndir um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi voru kynntar fyrir borgarráði Reykjavíkur í dag.

Sviðsmyndir þessar koma fram í skýrslu starfshóps sem skipaður var til að rýna stöðu skóla- og frístundastarfs í hverfinu, en vegna fjölgunar barna í hverfinu er farið að þrengja að húsakosti Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla.

Spár til 20 ára, sem unnið er eftir, gera ráð fyrir fjölgun nemenda í þessum þremur skólahverfum úr 1.648 árið 2020 í 1.774 árið 2040 og því er ljóst að bregðast þarf við vandanum strax.

Úr kynningu starfshópsins

Sviðsmyndinar þjár sem um ræðir eru eftirfarandi, en tillögurnar verða áfram til vinnslu innan starfshópsins:

  1. Að skólarnir þrír verði starfræktir í óbreyttri mynd, nema að byggt verði við þá alla til að mæta auknum nemendafjölda. Gerð verði safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Laugardalnum. Hugað væri að þörf Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla fyrir íþróttakennslu.
  2. Að tveir elstu árgangar Laugarnesskóla verði færðir yfir í Laugalækjarskóla og byggt við hann, en auk þessi verði byggt við Langholtsskóla. 1. og 2. bekkur úr Langholtsskóla fái aðstöðu í Dalheimum. Gera þarf ráð fyrir íþróttaaðstöðu í Laugarnesskóla og safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Laugardalnum fyrir nemendur í Langholtsskóla og Laugarnesskóla.
  3. Að opnaður verði nýr unglingaskóli í Laugardal fyrir alla unglinga úr skólunum þremur. Annað hvort yrði fundið húsnæði fyrir unglingaskólann eða byggt nýtt. Skólarnir þrír yrðu þá allir yngri barna-skólar fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Gera þyrfti ráð fyrir frístundaheimilum og félagsmiðstöðvastarfi í öllum þremur skólunum og rými fyrir skólahljómsveit Austurbæjar í Laugalækjarskóla.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði lögðu fram bókun um að fjölgun nemenda í hverfinu síðustu ár sýndi að borgarstjóri væri ekki að standa við boðaða stefnu:

Hér fara auðvitað ekki saman hljóð og mynd hjá borgarstjóra enda hefur ekki verið staðið við þá forgangsröðun sem hann boðar sjálfur; innviðir fyrst, svo uppbygging.

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins bókaði að henni þætti leið 1 vænlegust enda varðveiti hún skólagerðir hverfisins og viðhaldi hverfamenningu og aðstöðu barnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×