Xavi tekinn við Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. nóvember 2021 11:04 Xavi lyftir Meistaradeildarbikarnum eftir síðasta sinn leik með Barcelona, gegn Juventus í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 6. júní 2015. getty/Paul Gilham Xavi er tekinn við Barcelona. Al Sadd, félag Xavis í Katar, hefur staðfest þetta.
Xavi, sem er 41 árs, tekur við Barcelona af Ronald Koeman sem var rekinn eftir 1-0 tap fyrir Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni í síðustu viku. Sergi hefur stýrt Börsungum í síðustu tveimur leikjum þeirra. Xavi er í guðatölu hjá Barcelona enda vann hann allt sem hægt var að vinna með félaginu og var fyrirliði þess um tíma. Xavi er næstleikjahæstur í sögu Barcelona með 767 leiki. Eftir að hafa unnið þrennuna með Barcelona 2015 fór Xavi til Al Sadd. Þar lék hann í fjögur ár og tók svo við liðinu 2019. Undir hans stjórn vann Al Sadd einn meistaratitil og tvo bikarmeistaratitla í Katar. Talið er að Barcelona hafi þurft að greiða Al Sadd um fimm milljónir evra til að losa Xavi undan samningi hjá félaginu. Barcelona mætir Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Ólíklegt þykir að Xavi stýri liðinu í þeim leik. Hann verður líklega á hliðarlínunni í fyrsta sinn þegar Barcelona mætir Espanyol í Katalóníuslag eftir landsleikjahléið.
Spænski boltinn Spánn Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Sjá meira