Verbúð verðlaunuð á Spáni Þorgils Jónsson skrifar 5. nóvember 2021 20:36 Björn Hlynur og Gísli Örn í hlutverkum sínum. Íslenska þáttaröðin Verbúð, hlaut á dögunum dómnefndarverðlaunin á hátíðinni Serielizados Fest á Spáni. Hátt í 40 þættir og heimildarmyndir voru sýnd á hátíðinni.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Verbúð, sem kallast Blackport á ensku, hafi allt það sem þurfi til að gera góðan sjónvarpsþátt. Þar séu frábærir leikarar og fyrirtaks kvikmyndataka og klipping. Sagan fjalli um mannlíf í litlu þorpi, en engu að síður megi greina þar stærra samhengi við pólitík og feminisma. Þættirnir séu bæði einlægir og fyndnir. Þetta er ekki fyrsta vegtylla þáttanna, en Verbúð var einnig valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í september. Vesturport framleiddi þættina í samstarfi við RÚV, ARTE og Turbine Studios. Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Mikael Torfason skrifuðu handrit þáttanna. Gísli Örn, Björn Hlynur og María Reyndal leikstýra. Þættirnir eru átta talsins og verður fyrsti þátturinn sýndur á RÚV annan í jólum. Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fara með aðalhlutverk í þáttunum en meðal annara leikara eru Gísli Örn Garðarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Hilmir Snær Guðnason, Sverrir Þór Sverrisson, Ingvar E. Sigurðsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Selma Björnsdóttir, Ingrid Jónsdóttir og Jógvan Hansen.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Dramatísk þáttaröð um kvótakerfið á Íslandi vann virtustu verðlaunin Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Verbúð, sem frumsýnd verður síðar á árinu, var valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í gærkvöldi. 3. september 2021 08:36 Mest lesið Freyja snýr sér að þáttastjórnun Lífið Garðar Gunnlaugs að verða afi Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Nostalgía og glænýr sumarsmellur Lífið Andrés og Margrét gengin í það heilaga Lífið „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Tíska og hönnun Bankaforstjóri selur glæsihýsi í Laugardalnum Lífið Keypti lóð Gylfa og Alexöndru á 225 milljónir Lífið Framhjáhöld: Annar rannsóknarlögga en hinn í hundakofann Áskorun Hefði ekki trúað áhrifunum! Lífið samstarf Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira
Dramatísk þáttaröð um kvótakerfið á Íslandi vann virtustu verðlaunin Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Verbúð, sem frumsýnd verður síðar á árinu, var valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í gærkvöldi. 3. september 2021 08:36