Yfirskrift Heimsþingsins að þessu sinni er „Power together for progress“ en meðal þátttakenda í ár eru:
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Amina J. Mohammed aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ, Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar, Michelle Bachelet mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna og fyrrverandi forseti Chile, Ulrik Vestergaard Knudsen aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, Christy Tanner forseti Tanner Media, Jacqueline Fuller forseti Google, Marjut Falkstedt framkvæmdastjóri Evrópska Fjárfestingarbankans, Amy Weaver fjármálastjóri Salesforc og Sima Sami Bahous framkvæmdastjóri UN Women.
Á Heimsþinginu eru alltaf veitt sérstakar jafnréttisviðurkenningar og í ár mun Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hljóta heiðursverðlaun fyrir störf sín í þágu jafnréttis.
Þá verða kynntar niðurstöður Reykjavik Index for Leadership 2021 í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Kantar sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga. Viðhorf Íslendinga er nú mælt í fyrsta sinn og sá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd könnunarinnar hér á landi. Ennfremur verður kynntur uppfærður Reykjavik Women World Atlas 2020 í samstarfi við McKinsey Institute þar sem hlutur kvenna sem leiðtoga er kortlagður eftir löndum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir sérlegur ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women er stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga:
„Heimsþing kvenleiðtoga hefur vaxið mikið á þeim árum sem liðin eru frá því fyrsti viðburðurinn var haldinn hér á landi. Sá öflugi og stóri hópur kvenleiðtoga sem tekur þátt í viðburðinum reglulega er þó ekki það eina sem skiptir máli, heldur mælum við árangurinn miklu frekar í því hvernig þær lausnir og aðgerðir sem hér eru kynntar auka líkur á framförum í jafnréttismálum. Það hefur gengið afar vel og það skiptir mestu.“
Heimsþingið er haldið í samstarfi alþjóðlegu þingkvennasamtakanna Women Political Leaders, ríkisstjórnar Íslands og Alþingis, auk fjölda erlendra og innlendra samstarfsaðila. Þá er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, verndari Heimsþingsins líkt og verið hefur síðustu árin.
„Kvenleiðtogar frá öllum heimshornum fagna því að fá tækifæri til að læra af Íslandi í gegnum þátttöku í Heimsþingi kvenleiðtoga. Við erum mjög stolt af samstarfi okkar við ríkisstjórn Íslands, Alþingi og fleiri íslenska aðila sem staðfesta ár hvert hvers vegna Íslendingar geta verið stolt af stöðu sinni þegar kemur að jafnrétti. Við erum hér til að læra og ræða hvernig best má nýta reynsluna héðan öðrum þjóðum til hagsbóta,“ er haft eftir Silvönu Koch-Mehrin forseta og stofnanda WPL.
Í tilefni Heimsþingsins verður Atvinnulífið með ýmiss málefni kvenna í atvinnulífinu til umfjöllunar í þessari viku.