Innlent

Kynning ríkisstjórnar gæti dregist um eina til þrjár vikur

Heimir Már Pétursson skrifar
Samkvæmt heimildum fréttastofu er vinna við nýjan stjórnarsáttmála langt komin og gæti klárast um næstu helgi. Enn hafa formenn flokkanna þó ekki rætt skiptingu ráðherraembætta eða mögulega fjölgun ráðherra.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er vinna við nýjan stjórnarsáttmála langt komin og gæti klárast um næstu helgi. Enn hafa formenn flokkanna þó ekki rætt skiptingu ráðherraembætta eða mögulega fjölgun ráðherra. vísir/vilhelm

Eftir að undirbúningskjörbréfanefnd hefur skilað af sér gætu liðið ein til þrjár vikur í að ný ríkisstjórn yrði kynnt, allt eftir því hver niðurstaða nefndarinnar verður. Hún mun mögulega fara í aðra vettvangsheimsókn á talningarstað í Borgarnesi á morgun.

Undirbúningskjörbréfanefnd kom saman til fundar klukkan tiu í morgun og er reiknað með að fundurinn standi til klukkan þrjú í dag. Hvað sem öllu líður verður Alþingi samkvæmt stjórnarskrá að koma saman eigi síðar en 3. desember (4. desember er laugardagur) þegar tíu vikur verða liðnar frá alþingiskosningunum hinn 25. september. Staðan er hins vegar mjög flókin hvað boðun þings og kynningu á nýrri ríkisstjórn varðar.

Í megindráttum getur undirbúningskjörbréfanefndin komist að þrenns konar niðurstöðu. Í fyrsta lagi að gefa skuli út kjörbréf í Norðvesturkjördæmi á grundvelli fyrstu talningar, annarar talningar eða í þriðja lagi að boðað skuli til uppkosningar í kjördæminu.

Undirbúningskjörbréfanefnd kom saman til fundar klukkan tíu í morgun. Á fundinum verður ákveðið hvort nefndin fari í aðra vettvangsrannsókn á talningarstað í Norðvesturkjördæmi á hótel Borgarfirði.vísir/egill

Um leið og undirbúningsnefndin hefur skilað af sér verður Alþingi kallað saman til að kjósa fulltrúa í hina raunverulegu kjörbréfanefnd sem reiknað er með að verði skipuð sömu fulltrúum og undirbúningsnefndin. Hún mun þurfa nokkra daga til að fara yfir málin og er gengið út frá að gert hlé á þingfundi á meðan. Það hefur einnig með fjárlagafrumvarp að gera sem leggja þarf fram á fyrsta þingfundi samkvæmt lögum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu mun það taka tíu daga til hálfan mánuð að ganga frá fjárlagafrumvarpi til birtingar. En þegar hér er komið við sögu skiptir máli hvaða niðurstöðu undirbúningskjörbréfanefndin og í framhaldinu kjörbréfanefndin kemst að.

Verði það niðurstaða nefndarinnar að boða til uppkosningar í Norðvesturkjördæmi munu þingmenn úr öllum kjördæmum nema Norðvesturkjördæmi greiða atkvæði um þá tillögu, eða 47 þingmenn af sextíu og þremur. Samþykki þingið uppkosninguna er talið að hún geti farið fram um tíu dögum frá því ákvörðun liggur fyrir. Þá yrðu sömu listar og frambjóðendur í boði og stuðst yrði viðsömu kjörskrá og í kosningunum 25. september.

Eftir það yrði sennilega lagt fram fjárlagafrumvarp af þeirri ríkisstjórn sem nú situr.

Ef Alþingi fengi málið í sínar hendur næst komandi mánudag og tæki sér þrjá daga til að yfirfara málið og niðurstaðan yrði sú sem nefnd er hér að framan gæti uppkosningin farið fram laugardaginn 27. nóvember. Hún gæti breytt eitthvað fyrri kosningaúrslitum en varla nóg til þess að hafa meirihlutann á þingi af ríkisstjórninni. Þegar úrslit lægju fyrir myndu stjórnarflokkarnir væntanlega fljótlega kynna nýja ríkisstjórn.

Ef annað hvort upprunalega talningin eða endurtalningin yrði aftur á móti látin standa gæti sú niðurstaða legið fyrir áður en næsta vika er liðin. Þá yrði ný ríkisstjórn og stjórnarsáttmáli væntanlega kynnt í lok næstu viku.

Hver sem niðurstaðan verður má síðan fastlega reikna meðað málið verði sent til Mannréttindadómstóls Evrópu.


Tengdar fréttir

Ætla aftur í Borgar­nes að skoða at­kvæðin betur

Undirbúningskjörbréfanefnd ætlar aftur í vettvangsferð í Borgarnes, helst strax í þessari viku, til að fara aftur yfir frágang kjörgagna. Formaður nefndarinnar vill ekki gera grein fyrir því hvaða atriði þurfi að skoða nánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×